Spacer
Spacer Spacer
Atvinnulífið skapar störfin
Aðalfundur SA er haldinn á miðvikudaginn í næstu viku undir yfirskriftinni „Atvinnulífið skapar störfin". Tilgangur samtakanna með þessari yfirskrift er að vekja fólk til umhugsunar um að 20 þúsund ný störf verða því aðeins til á næstu árum að fyrirtækin í landinu búi við starfsskilyrði sem hvetja þau til fjárfestinga og aukinna umsvifa og þar með til þess að ráða fleiri starfsmenn. Ríki eða sveitarfélög munu ekki verða leiðandi í nýrri atvinnusókn og því síður munu auknar álögur á atvinnulífið eða þá einstaklinga sem fjárfesta í atvinnulífi hjálpa til við að skapa ný störf. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA.

Sjá nánar

Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf
Hagvöxtur og störfÁ síðustu 45 árum, frá 1963-2008, jókst landsframleiðsla að jafnaði um 3,9% á ári og störfum fjölgaði um 2,0%. Hverri prósentu í hagvexti fylgdi þannig fjölgun starfa um hálft  prósent. Ef þetta samband verður í gildi áfram á næstu árum þarf landsframleiðslan að vaxa um tæpan fjórðung fram til ársins 2015 til þess að fjölgun starfa um 20.000 verði að veruleika. Að því gefnu að landsframleiðslan minnki um 10% á þessu ári og að enginn hagvöxtur verði á næsta ári þá þarf hagvöxtur að vera 4,5% árlega að jafnaði á árunum 2011-2015 svo þetta markmið náist.

Sjá nánar

Hægt að flytja vel launuð störf til landsins
Þórður MagnússonÖssur og Marel munu fjárfesta fyrir um 6 milljarða króna í rannsóknar- og þróunarstarfi á árinu. Að stórum hluta fer það fram erlendis en með tiltölulega einföldum aðgerðum má flytja stærra hlutfall þessarar starfsemi til Íslands og skapa vel launuð störf. Þetta kemur fram í viðtali SA við Þórð Magnússon, stjórnarformann Eyris Invest, en þar fjallar Þórður um hugmyndir sem hann hefur sett fram til að liðka fyrir sköpun starfa á Íslandi.

Sjá nánar

Ný störf verða ekki til án stöðugleika
Hilmar SigurðssonTil að hægt sé að skapa störf á Íslandi á næstu árum er algjör grundvallarforsenda að hér ríki stöðugleiki. Þetta er mat Hilmars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra CAOZ. Vegna umróts í efnahagslífinu eru starfsmenn CAOZ aðeins 8 en ekki 30 eins og til stóð. Þrátt fyrir það er þó er mikill kraftur í fyrirtækinu sem er með teiknimynd um þrumugoðið Þór í framleiðslu, tölvuleik og mynd um Egilssögu. Fyrirtækið hefur jafnframt átt í viðræðum við erlenda dreifingaraðila um mögulega framleiðslu á Þór 2.

Sjá nánar

Skráning á aðalfund SA er í fullum gangi
Atvinnulífið skapar störfin er yfirskrift aðalfundar SA 2009 sem verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 15:00. Ljóst er að það verður þétt setinn bekkurinn á Nordica því skráningar ganga mjög vel. Hægt er að skrá þátttöku hér að neðan.

Formaður SA, Þór Sigfússon, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytja erindi. Þá munu Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður leggja á ráðin um hvernig hægt sé að skapa 20.000 störf. Fundarstjóri er Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Marel Food Systems.

Smelltu til að skrá þig!

Dagskrá lýkur kl. 16:30 þegar atvinnulífið kveður vetur með formlegum hætti.

Smelltu hér til að skrá þig 

Kosningu formanns SA lýkur á hádegi 22. apríl
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi  SA þann 18. apríl 2008. Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 22. apríl 2008.

Smellið hér til að kjósa 

Rödd atvinnulífsins 14.-21. apríl
Í aðdraganda aðalfundar SA 22. apríl munu SA senda út sex útvarpsþætti undir heitinu Rödd atvinnulífsins. Þættirnir verða sendir út í gegnum vef SA en einnig verður hægt að hlusta á þá í venjulegum viðtækjum á tíðni Útvarps Sögu FM 99,4 milli kl. 17 og 18. Upptökur af þáttunum verða aðgengilegar á vef SA að aflokinni útsendingu.

Endurreisn og uppbygging verður í forgrunni í þætti dagsins kl. 17-18 (16. apríl). Rætt verður m.a. við Margeir Pétursson, stjórnarformann MP Banka, um endurreisn íslenska bankakerfisins, MP banka og SPRON.

Sjá nánar

  
 
  14. - 21. apríl 2009
   

Kjarasamningar

Umsagnir

Útgáfa SA

Á döfinni

Fréttir af atvinnulífinu á sa.is

Aðalfundir SA

Formannskjör 

  HITTUMST Á NORDICA
Á SÍÐASTA DEGI VETRAR

Nordica 

  - TÖLUM SAMAN 
 
Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer
Smelltu hér til að afskrá þig.

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við okkur.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440