Spacer
Spacer Spacer

     Leiðari

Víðtæk samvinna nauðsynleg
Í ítarlegri samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er þung áhersla lögð á samvinnu við aðila vinnumarkaðarins á fjölmörgum sviðum. Þessar áherslur eiga sér líklega ekki fordæmi hér á landi og endurspegla annars vegar það grafalvarlega ástand sem ríkir í efnahagslífinu og þá ríku kröfu sem gerð hefur verið um fjölþætt samstarf leiðandi aðila með það að markmiði að tryggja stöðugleika til frambúðar og efla atvinnustarfsemi. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
Sjá nánar »

     Fréttir

Óraunhæfar hugmyndir um styttingu vinnuviku
Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er ákvæði um aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi og þess getið í því samhengi að metnir verði kostir þess að stytta vinnuvikuna. Þetta kemur nokkuð á óvart því vinnutími er viðfangsefni kjarasamninga og meðal samningsaðila hafa undanfarin ár ekki farið fram neinar umræður um styttingu vinnuvikunnar. Orlof er töluvert lengra á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum og sérstakir frídagar sömuleiðis fleiri. Ársvinnutími í dagvinnu er hvergi lægri nema í Þýskalandi og Frakklandi og hvorki eru tilefni né aðstæður til þess nú að eyða miklum tíma í skoðun á því hvort stytta eigi vinnuvikuna á Íslandi.
Sjá nánar »
Bandaríkin gegna lykilhlutverki í loftslagsmálunum
Um þessar mundir stendur yfir samningaferli þar sem aðildarríki loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna freista þess að komast að niðurstöðu um hvernig skuli draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá 2013. Á árinu 2012 lýkur tímabili Kyoto-bókunarinnar sem hófst á síðasta ári en samkvæmt henni var gert ráð fyrir að útstreymi frá iðnríkjum verði 5% minna á tímabilinu borið saman við árið 1990. Ný ríkisstjórn Bandaríkjanna gegnir lykilhlutverki í þessum samningum. Nýlega hefur aðalsamningamaður Bandaríkjanna lagt línurnar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og felast skilaboðin í 10 meginþáttum.
Sjá nánar »
SA tengiliður við Global Compact verkefni SÞ
Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með því vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum..
Sjá nánar »
SA og Félagsráðgjafafélag Íslands semja
Samtök atvinnulífsins og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert með sér kjarasamning sem nær til félagsmanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins og gegna störfum sem krefjast háskólamenntunar. Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2009. Með samningnum gengur FÍ inn í kjarasamning sem SA gerðu við 14 aðildarfélög BHM á síðasta ári.
Sjá nánar »
Orlofsuppbót 2009
Þann 1. maí síðastliðinn hófst nýtt orlofsár. Samkvæmt flestum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til vinnutíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2008 til 30. apríl 2009. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 19.000.
Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA

 

     Frá aðalfundi SA 22.apríl

Atvinnulífið skapar störfin
Um 400 manns mættu á aðalfund SA sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica á síðasta degi vetrar. Yfirskrift fundarins var Atvinnulífið skapar störfin. Öll gögn frá fundinum eru aðgengileg á vef SA, m.a. ársskýrsla, erindi formanns SA og forsætisráðherra ásamt upptökum og umfjöllun um önnur erindi. Einnig upplýsingar um kjör stjórnar og formannskjör en Þór Sigfússon var endurkjörinn formaður samtakanna.

Allt um aðalfund SA hér

     Fréttir af atvinnulífinu á sa.is

Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.
Smellið hér til að nálgast fréttayfirlit
ÁRSSKÝRSLA SA
2008-2009
Smelltu til að sækja  

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

 
 Á döfinni:

Að tala fyrir Íslands hönd

Ráðstefna 20. maí í Salnum

 

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við okkur.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440