Í þessum pósti eru myndir. Ef þær birtast ekki, smelltu þá hér
Leiðari
Risavaxin áskorun í ríkisfjármálum
Ekki hefur enn verið tekin pólitísk ákvörðun um hlutföll skatttekna og niðurskurðar í blandaðri leið til aukins aðhalds í ríkisfjármálum. Að mati Samtaka atvinnulífsins er óraunhæft að ganga út frá því að helmingur aðhaldsins náist með auknum skatttekjum því það muni ganga of nærri skattstofnunum. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Hann segir það enda með ósköpum ef ekki verði tekið á halla ríkissjóðs fyrr en síðar. Stjórnvalda bíði það verkefni að draga úr ríkisútgjöldum um 100 milljarða á þremur árum, eða sem nemur 20% af útgjöldum. Sjá nánar »
Fréttir
Stjórnendur svartsýnni á framtíðina
Niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup meðal stærstu fyrirtækja landsins liggja nú fyrir. Líkt og í samsvarandi könnunum í mars 2009 og desember 2008 meta stjórnendur fyrirtækjanna aðstæður í atvinnulífinu afleitar. Telja stjórnendur 97% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni að aðstæður séu nú mjög slæmar (62%) eða frekar slæmar (35%), en ekkert fyrirtæki telur þær góðar. Sjá nánar »
Heimskreppa til ársins 2015?
Á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf sem nú stendur yfir er m.a. fjallað um það hvort efnahagur heimsins fari að rétta úr kútnum eða hvort áframhaldandi þrengingar séu í spilunum. Í umræðum í nefnd um viðbrögð við kreppunni hefur komið fram það álit að hægur viðsnúningur hefjist á árinu 2010 sem þó sé háður því að fjármálakerfi heimsins fari að virka sem skyldi og fjármagnsflutningar verði með eðlilegum hætti. Svartsýnustu spár gera ráð fyrir því að störfum fari ekki að fjölga að ráði fyrr en í fyrsta lagi árið 2015. Sjá nánar »
Bættur hagur með rafrænum viðskiptum
Verulegur ávinningur er fólginn í innleiðingu rafrænna viðskipta en samkvæmt nýlegri erlendri rannsókn er ávinningur af upptöku rafrænna innkaupa áætlaður nema allt að 0,8% af vergri landsframleiðslu. Í tilfelli Íslands væri sparnaðurinn því um 11 milljarðar á ári. Áætlað er að 80-90% innkaupa nú séu á pappírsformi en hægt er að lækka kostnað um 70-75% með fyrir hvern reikning sem berst rafrænt í stað pappírs eða um 200 krónur. Sjá nánar »
Staðlar seljast sem aldrei fyrr
Staðlar seljast vel um þessar mundir en í maí sló salan líkast til met. Í lok ársins 2008 voru tæplega 21 þúsund staðlar í gildi á Íslandi en þegar kreppir að opnast augu fólks fyrir gildi þess að nýta sér stöðluð viðmið, fyrirmyndir og samræmdar aðferðir. Staðlaráð selur staðla, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun. Áfram miðar í starfi ráðsins og aðila vinnumarkaðarins við að búa til staðal til að byggja á vottunarkerfi um framkvæmd jafnlaunastefnu. Sjá nánar »
Fréttir af atvinnulífinu á sa.is
Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum. Hér að neðan er úrval frétta sem birst hefur frá því síðasta fréttabréf SA kom út:
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við okkur. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440