Spacer
Spacer Spacer

     Leiðari

Stöðugleikasáttmálinn - vegvísir út úr kreppunni
Vinna við að fylgja eftir stöðugleikasáttmálanum frá 25. júní er þegar hafin. „Mikilvægt er að hefjast strax handa vegna þess að mörg mikilvæg mál sem þarf að ljúka fyrir 1. nóvember næstkomandi eru umfangsmikil. Því þarf að taka vel til hendi til þess að leiða þau til lykta," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Fyrsti samráðsfundurinn með ríkisstjórninni var í gær og fyrr í dag gengust SA fyrir sérstökum fundi vegna álversins í Helguvík og tengdra fjárfestinga í orkugeiranum. Vilhjálmur segir að engan tíma megi missa til þess að koma atvinnulífinu almennilega af stað fyrir næsta haust og vetur. Meginverkefnið sé að láta ekki hörmungarspár rætast - að því þurfi allir að vinna.
Sjá nánar »

     Fréttir

Þór Sigfússon í leyfi frá formennsku í SA
Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að taka sér leyfi frá störfum sem formaður Samtaka atvinnulífsins um óákveðinn tíma, frá og með 9. júlí, þar til mál skýrast varðandi stöðu hans í rannsókn sérstaks saksóknara á fjárfestingarstarfsemi Sjóvar. Þetta kemur fram í bréfi Þórs til félagsmanna SA en greint var frá rannsókninni á vef SA. Þór segist telja að störf hans hjá Sjóvá hafi í einu öllu verið í samræmi við lög enda hafi hann unnið af metnaði og bestu samvisku fyrir fyrirtækið. Honum sé umhugað um að starfsemi SA gangi eins vel og kostur er og vilji á engan hátt að samtökin verði fyrir skaða vegna fyrrgreindrar rannsóknar sem sé þeim algjörlega óviðkomandi.
Bréf Þórs má lesa á sa.is
Hvatt til innlendrar og erlendrar fjárfestingar
ÍslandÍ stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera náðist sátt um að greiða fyrir auknum framkvæmdum til að auka atvinnu. Lykilatriði er að hvatt verði til þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta í fjölbreyttum verkefnum. Nauðsynlegt er að hraða framkvæmdum við álver í Helguvík sem þegar eru hafnar og kanna þarf áhuga fjárfesta á þátttöku í fjárfestingarverkefnum á sviði orkunýtingar án þess að ríki og sveitarfélög afsali sér eignarhaldi á auðlindum. Þá er mikilvægt að leita leiða til að ráðast í arðbærar samgönguframkvæmdir sem að hluta yrðu fjármagnaðar með notendagjöldum. Þetta kemur m.a. fram í ítarlegri umfjöllun SA um verklegar framkvæmdir.
Sjá nánar »
Launabreytingum frestað
Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki.
Sjá nánar » 
Hærra tryggingagjald og hátekjuskattur
Frá 1. júlí verður tryggingagjald 7,0% í stað 5,34%. Annars vegar hækkar atvinnutryggingagjald úr 0,65% í 2,21% og hins vegar tvöfaldast gjald í ábyrgðasjóð launa og fer í 0,2%. Samtals hækkar tryggingagjald því um 1,66%  Hækkað gjald reiknast af launum frá og með 1. júlí og kemur til greiðslu við innheimtu staðgreiðslu í ágúst. Viðbót vegna launa sjómanna á fiskiskipum verður áfram 0,65%.
Sjá nánar »
Ný kaupgjaldskrá á vef SA
Kaupgjaldskrá nr.11 er komin á vef SA og gildir hún frá 1. júlí 2009. Kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki. Taxtahækkun er háð því að samninganefnd ASÍ og SA samþykki samninginn en niðurstaða skal liggja fyrir 14. júlí nk.
Sjá nánar »
Sumarlokun skrifstofu SA
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Samtaka atvinnulífsins lokuð dagana 20. júlí til 3. ágúst (að báðum meðtöldum), en svarað verður í símann og brugðist við áríðandi erindum. Skrifstofan verður opnuð á ný þriðjudaginn 4. ágúst.

      Stöðugleikasáttmálinn

Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaga var undirritaður þann 25. júní. Á sama tíma voru kjarasamningar við Alþýðusambandið og aðildarfélög þess voru framlengdir. Markmið Samtaka atvinnulífsins í viðræðum við Alþýðusambandið, ríkisstjórnina og aðra aðila stöðugleikasáttmálans var að skapa skilyrði fyrir sóknarfærum í atvinnulífinu, nýjum fjárfestingum, auknum umsvifum, fjölgun starfa, minna atvinnuleysi og meiri verðmætasköpun.
Kjarasamningar undirritaðir

      Vinnumarkaðsmál

Vinnustaðaskírteini tekin í notkun í haust
Vinnustaðaskírteini verða innleidd í byggingariðnaði í haust. Þeim er m.a. ætlað að auðvelda eftirlit á vinnustöðum svo hægt sé að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta.
Óskilvirk vinnumiðlun
Nú þegar álögur á atvinnulífið vegna atvinnuleysis hafa þrefaldast með hækkun atvinnutryggingagjalds úr 0,65% í 2,21% aukast kröfur um að vel sé haldið á fjármunum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Vaxandi kröfur eru gerðar til þess að fólk þiggi ekki atvinnuleysisbætur á sama tíma og laus störf eru í boði sem það getur unnið. Töluvert er kvartað yfir því í atvinnulífinu að illa gangi að manna sum störf ófaglærðra, t.d. á hótelum.
Sjá nánar »
Um tekjur og gjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs
Tekjustofn Atvinnuleysistryggingasjóðs er atvinnutryggingagjald, sem er hluti af lögbundnu tryggingagjaldi atvinnurekenda sem reiknast af greiddum launum. Í árslok 2008 var eigið fé sjóðsins um 16 milljarðar króna. Aukin greiðslubyrði sjóðsins vegna nýrra viðfangsefna og sérstakrar hækkunar bóta í janúar umfram almennar launahækkanir var talin leiða til þess að sjóðurinn myndi tæmast haustið 2009 ef ekkert yrði að gert. Með hækkun atvinnutryggingagjalds frá 1. júlí sl. úr 0,65% í 2,21% gera bjartsýnustu spár ráð fyrir að um næstu áramót verði eigið fé sjóðsins jákvætt um 2,5 milljarða en útlitið verði dökkt á árinu 2010.
Sjá nánar »

      Umsagnir til Alþingis

AlþingiSamtök atvinnulífsins vekja athygli á þremur umsögnum SA til Alþingis sem má nálgast á vef samtakanna. Um er að ræða umsagnir um frumvarp fjármálaráðherra vegna Icesave, frumvarp um Bankasýslu ríkisins og umsögn um tillögu að aðildarumsókn Íslands að ESB. Samtök atvinnulífsins styðja að gengið verði til samninga vegna Icesave og benda á að efnahagslegur kostnaður af því að fella samkomulagið gæti orðið mjög mikill. Lausn málsins sé þáttur í því að sköpun starfa geti hafist á ný á Íslandi.
Sjá nánar »

       Nýr fastafulltrúi SA í Brussel

Jón Óskar Sólnes hefur verið skipaður fastafulltrúi Samtaka atvinnulífsins hjá BUSINESSEUROPE (Evrópusamtökum atvinnulífsins) til eins árs frá og með 1. júlí 2009. Jón Óskar leysir af Sigrúnu Kristjánsdóttur sem fer í árs barnsburðarleyfi. Jón Óskar hefur fjölþætta reynslu af alþjóðamálum.
Sjá nánar »

        Fréttir af atvinnulífinu á sa.is

Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.

Smellið hér til að nálgast fréttayfirlit

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
 

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

 

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við okkur.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440