Komandi vetur verður landsmönnum mjög erfiður efnahagslega og því er brýnt að hefja nú þegar þær aðgerðir sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga frá því í sumar. Í aðdraganda samkomulagsins var sett fram sú sameiginlega sýn að skapa 15.000 störf fram til ársins 2013 en sá árangur næst ekki nema hagvöxtur verði óvenju mikill, eða 4-4,5% á hverju ári. Til að hagvöxtur hefjist á ný liggja fjárfestingar í orkugeiranum og tengdum iðju- og gagnaverum beinast við. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
Mikilvægt að skipuleggja smitvarnir vegna inflúensu - starfsemi fyrirtækja getur raskast
Mikilvægt er íslensk fyrirtæki skipuleggi smitvarnir til að draga úr útbreiðslu inflúensu A(H1N1)v (svínainflúensu) enda geta markvissar forvarnir dregið verulega úr tjóni þjóðfélagsins af völdum inflúensunnar. Gert er ráð fyrir að inflúensan nái sér aftur á strik þegar vetur gengur í garð í Evrópu. Starfsemi sumra fyrirtækja getur raskast verulega ef miklar fjarvistir verða og er mælt með því að gerð sé áætlun um hvernig haga skuli starfseminni við slíkar aðstæður.
Þrátt fyrir að vísbendingar séu farnar að sjást í Evrópu um að kreppunni þar kunni brátt að ljúka eru evrópskir atvinnurekendur aðeins hóflega bjartsýnir á framtíðina. Áætlað er að efnahagur landa ESB dragist saman að meðaltali um 3,9% á þessu ári og hagvöxtur verði aðeins 0,7% á því næsta. Búist er við að kreppan muni hafa neikvæð áhrif um langa hríð á fjárfestingu , atvinnustig og fjármál opinberra aðila og grípa þurfi til fjölþættra aðgerða svo atvinnulífið blómstri á ný. Búist er við að verðbólga á evrusvæðinu á næsta ári verði að meðaltali 1,3% m.v. 0,3% á árinu 2009. Þetta kemur fram í nýrri haustspá Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) um efnahagshorfurnar framundan.
Samtök atvinnulífsins hafa skipað sex starfshópa til að fjalla um málefni atvinnulífsins vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. Aðildarfélög SA munu fjalla um afstöðuna til ESB innan eigin raða út frá hagsmunum sinna atvinnugreina en starfshópum SA er ætlað að fjalla um málið út frá tilteknum atriðum sem snerta atvinnulífið sem heild. Vinna hópanna er hafin en þeir eru opnir fulltrúum aðildarfélaga SA og eins þeim sem hafa sérþekkingu á viðkomandi málefnum sem nýtast í umfjöllun hópanna.
Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman stutta en greinargóða samantekt á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi og horfur í viðskiptalífinu. Aðildarfélög SA eru hvött til þess að koma upplýsingunum á framfæri við erlenda samstarfsaðila og viðskiptavini. Samantektina má nálgast á vef SA og verður hún uppfærð reglulega eftir því sem tilefni gefast til.
Vilmundur Jósefsson, starfandi formaður SA, segir að það setji að mönnum hroll í atvinnulífinu við að hlýða á orð seðlabankastjóra um að til greina komi að hækka vexti. Það sé tvímælalaust ögrun gagnvart stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera. Launalið kjarasamninga hafi verið frestað fram í október meðal annars til að gefa Seðlabankanum tíma til að lækka vexti niður fyrir tíu prósent. Atvinnulífið sé á heljarþröm og ljóst sé að taka verði til hendinni þar sem 15 þúsund manns eru nú án atvinnu.
Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með verkefninu vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum. Skipaður verður starfshópur um samfélagslega ábyrgð á vegum SA og stýrir Hörður Vilberg hópnum.
Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq OMX Ísland, munu standa fyrir kynningarfundum í september á þriðju útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem komu út í sumar. Um verður að ræða stutta fundi á tímum sem henta stjórnendum og starfsmönnum aðildarfyrirtækja. Farið verður yfir efnistök nýju leiðbeininganna og spurningum svarað.
Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila Alþjóðlegrar athafnaviku sem fram fer 16.-22. nóvember í meira en 100 löndum og þar á meðal á Íslandi. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið ásamt því að kveikja bjartsýni.
Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440