Rannis

Sótt um 800 milljónir kr. til Tækniþróunarsjóðs

Alls bárust 102 umsóknir til Tækniþróunarsjóðs en umsóknarfrestur rann út 15. september. Samtals var sótt um ríflega 800 m.kr. í nýja styrki fyrir fyrsta verkefnisár, en sjóðurinn hefur um 130 m. kr. til ráðstöfunar í þann málaflokk. Tækniþróunarsjóður auglýsti eftir umsóknum í þrjár tegundir styrkja. Um frumherjastyrk barst 21 umsókn upp á 162 m.kr., 11 umsóknir voru um brúarstyrki, samtals að fjárhæð 49 m.kr. og alls komu 70 umsóknir um verkefnisstyrki og sótt var 616 m.kr. í þann flokk. Þetta eru talsvert fleiri umsóknir en siðast liðið haust, það stefnir því í óvenju lágt árangurshlutfall, eða um 15%.

Umsóknir eru til umfjöllunar hjá fagráðum. Gert er ráð fyrir að niðurstaða stjórnar sjóðsins um úthlutun liggi fyrir í byrjun desember.

Aldrei fleiri í doktorsnámi

Aldrei hafa eins margir lagt stund á doktorsnám hér á landi og árið 2008 þegar taldir eru 257 doktorsnemar.  Til samanburðar má nefna að árið 2000 mátti finna um 50 íslenska doktorsnema og um 100 árið 2003.  Konur eru nú um 60% doktorsnema.
http://www.rannis.is/frettir/hagtolur/nr/1965/

Nýtt Vísinda- og tækniráð á fyrsta fundi
Fyrsti fundur nýs Vísinda- og tækniráðs var haldinn 22. september s.l. Auk forsætisráðherra sátu fundinn menntamálaráðherra, iðnaðarráðherra, fjármálaráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfisráðherra.Til viðbótar við ráðherra sitja í ráðinu 16 manns sem starfa í vísindanefnd og tækninefnd.

Vísinda og tækniráð hefur starfað frá árinu 2003 og leitast við að halda fundi tvisvar á ári, en nú er stefnt að því að halda allt að fjóra fundi á ári, til að tryggja sem nánast samstarf milli ráðherra og ráðuneytis viðkomandi málaflokka og nefndanna sem starfa á milli ráðsfunda í vísindanefnd og tækninefnd. Jafnframt er gert ráð fyrir að Rannís fái aukið hlutverk sem þjónustustofnun fyrir málaflokkinn.

Á fundinum voru ræddar tillögur um uppbyggingu á innviðum rannsóknastarfs verklag ráðsins og drög að stefnumörkun fram til 2012.

Framlög til rannsókna og þróunar lækka um 850 milljónir kr.
Framlög ríkisins til rannsókna og þróunar lækka um 850 milljónir króna samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010. Lækkunin nemur 5%. Þetta kemur fram í mati Rannís á rannsóknaþætti frumvarpsins. Það eru ríkisaðilar sem heyra til menntamálaráðuneyti, landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneyti, heilbrigðis og tryggingamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og umhverfisráðuneyti sem sem lækka hvað mest. Mest er  lækkunin hjá ríkisaðilum sem heyra undir menntamálaráðuneyti. Hér er það rannsókna og þróunarstarf hjá menntastofnunum sem lækka mest eða um 400 milljónir en opinberar rannsóknastofnanir sjá einnig fram á lækkun. Rannsóknasjóðir lækka um tæpar 50 milljónir á milli ára og eru það Tækniþróunarsjóður sem lækkar um 20 milljónir og rannsóknasjóður um aukið verðmæti sjávarfangs (AVS-sjóðurinn) sem lækkar um tæpar 30 milljónir.
Rannís vinnur að nánari greiningu á breytingum á þætti rannsókna og þróunar í fjárlagafrumvarpinu.
Fjölmenni á Vísindavöku

Visvaka09 stulka bleik

Tæplega 3000 gestir sóttu heim Vísindavöku sem haldin var á Listasafni Reykjavíkur 25. september. Um 70 sýnendur tóku þátt og hafa þeir aldrei verið fleiri.

Markmiðið með Vísindavöku og atburðum henni tengdum er að færa vísindin nær almenningi, kynna fólkið á bak við rannsóknirnar og vekja almenning til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Rannís stendur fyrir Vísindavöku.

Veitt voru verðlaun í teiknimyndasamkeppni barna og mætti menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, til að afhenda verðlaunin.

Norrænar öndvegisrannsóknir
Að frumkvæði norrænu forsætisráðherrana er unnið að áætlun s.k. Toppforskningsinitiativet eða TFI, þar sem lögð er áhersla á loftslags-, orku- og umhverfisrannsóknir. Um er að ræða samstarfsverkefni norrænu stofnananna, NordForsk, Nice og NEF, áætlað er að 400 m DKK (um 10 milljarðar íkr) verði ráðstafað til þessara rannsókna auk framlaga frá löndunum sem taka þátt. Lögð verður áhersla á fagkunnáttu í rannsóknum og nýsköpun og náið samstarf við atvinnulíf.
Spacer

Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 5155800 • Fax 5529814 • rannis@rannis.is

 

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440