Framhald stöðugleikasáttmálans í höndum ríkisstjórnarinnar
„Næstu dagar eru mjög mikilvægir fyrir þróun íslensks atvinnulífs á næstu misserum og árum. Ef fjárfestingarnar í atvinnulífinu verða ekki að veruleika hefur það í för með sér stóraukinn samdrátt í efnahagslífinu á næsta ári og langt umfram þau 2% sem þjóðhagsforsendur ganga út frá. Þá verður allt sem verið er að leggja á sig til sparnaðar í ríkisútgjöldum, skattahækkana og hófstillingar í launamálum unnið fyrir gíg." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir þessa hryllingsmynd ekki þurfa að verða að veruleika, enn sé hægt að taka ákvarðanir til að koma fjárfestingum af stað. „Boltinn er fyrst og fremst hjá ríkisstjórninni en Samtök atvinnulífsins munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að farsælli lendingu."
Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 14% áforma fjölgun starfsmanna en 26% hyggjast fækka þeim. Af þeim sem hyggjast fjölga starfsmönnum ætla tveir þriðju að fjölga um innan við fimm starfsmenn. Þó finnst dæmi um áformaða fjölgun um yfir 50 starfsmenn. Í þeim hópi sem hyggst fækka starfsmönnum ætla 70% að fækka um innan við fimm starfsmenn en fimmtungur þeirra hyggjast fækka um meira en 10, sem geta talist hópuppsagnir. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna.
Umtalsverð lækkun stýrivaxta myndi hleypa lífi í fjárfestingar
Rúmlega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (62%) segja að umtalsverð lækkun stýrivaxta myndi hvetja fyrirtækin til fjárfestinga. Það er því til mikils að vinna með því að lækka stýrivexti Seðlabankans duglega þar sem fjárfestingar fyrirtækja eru í algjöru lágmarki. Rúmlega sextíu prósent fyrirtækja (64%) telja að aðgerðir eða áform stjórnvalda hafi ekki haft nein áhrif á fjárfestingaráform fyrirtækjanna en rúmlega þriðjungur (36%) telur áform stjórnvalda beinlínis hafa haft neikvæð áhrif.
Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best. Á vef SA má nú finna lista yfir fjölmargar öflugar rekstrarkonur sem eru til í að láta frekar til sín taka í íslensku viðskiptalífi.
Opinn fundur um stöðugleikasáttmálann 21. október
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar miðvikudaginn 21. október næstkomandi. Félagsmenn SA eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um sáttmálann og framgang hans. Fundurinn fer fram á Hótel Loftleiðum kl. 8:00-10:00.
Tillögur hafa verið lagðar fram um að breyta formi á skattlagningu lífeyrissparnaðar þannig að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði ekki frádráttarbærar til skatts heldur myndi skattskyldar tekjur hjá viðkomandi einstaklingi, hvort heldur það er hann sjálfur eða launagreiðandi sem innir þær af hendi. Á móti verði greiðslur úr lífeyrissjóðum skattfrjálsar. Áhrif þessara breytinga yrðu margþætt og myndu hafa umtalsverð þjóðhagleg áhrif.
„Við verðum að horfa til framtíðar og byggja upp ný arðbær störf, spara og fjárfesta okkur út úr kreppunni. Hver sá sem horfir á möguleika okkar utanfrá sér á augabragði vannýttar náttúruauðlindir sem geta orðið til gagns og skapað skilyrði fyrir velmegun og velferð þjóðarinnar allrar." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í ávarpi á Umhverfisþingi.
Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.
Opni háskólinn í HR býður stjórnarmönnum og æðstu stjórnendum fyrirtækja og stofnana upp á hagnýtt námskeið sem hefst þann 21. október nk. Yfirskrift þess er „Ábyrgð og árangur stjórnarmanna" og er ætlað að auka þekkingu þessa hóps á ábyrgðum og skyldum stjórnarmanna og treysta faglegan grunn þeirra.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440