Spacer
Spacer Spacer

     Leiðari

Orð skulu standa
Í leiðara rekur Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvernig samtökin hafi bent á leiðir til að ná niður halla ríkissjóðs. Hann leggur áherslu á að samkeppnisstöðu fyrirtækja og atvinnugreina verði ekki raskað, að ríkisstjórnin standi við það sem um var samið í stöðugleikasáttmálanum í júní og við framlengingu kjarasamninga fyrir tveimur vikum. Leiðaranum lýkur Vilhjálmur með þessum orðum: „Samtök atvinnulífsins munu aldrei una skattahækkunum sem eru til þess fallnar að dýpka og lengja kreppuna og geta heldur ekki unað því að gengið sé þvert á það sem búið er að semja um. Verði það niðurstaða ríkisstjórnarinnar skilja leiðir."

Sjá nánar » 

     Fréttir

Launabreytingar á almennum vinnumarkaði
Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda gildi sínu til nóvemberloka 2010. Það þýðir að umsamdar launabreytingar koma til framkvæmda 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Í nóvember er annars vegar um að ræða 3,5% launaþróunartryggingu og hins vegar sérstaka hækkun lágmarkstaxta kjarasamninga. Þann 1. júní 2010 hækka laun um 2,5% en þá kemur einnig til sérstök hækkun lágmarkstaxta. 

Sjá nánar »

Grímur Sæmundsen varaformaður SA
Grímur Sæmundsen, varaformaður SAÁ fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn SA fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA. Grímur hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA. Vilmundur Jósefsson var áður varaformaður SA en hann gegnir nú formennsku í samtökunum.

Sjá nánar »

Er að marka fjárlög?
Fjárlög 2Samtök atvinnulífsins og Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við fjármálaráðuneytið efna til opinnar ráðstefnu þriðjudaginn 17. nóvember um opinber fjármál. Fjallað verður á ítarlegan hátt um framkvæmd fjárlaga og hvernig markmiðum þeirra verður náð árið 2010. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13:30-17:00. Ekkert þátttökugjald en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.
 
Fjöldi jákvæðra frétta borist til SA
Samtök atvinnulífsins opnuðu á dögunum pósthólf fyrir jákvæðar fréttir á vef SA og skemmst er frá því að segja að fjöldi jákvæðra frétta hefur borist úr íslensku atvinnulífi á stuttum tíma. Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki og frumkvöðla til að halda áfram að stinga að SA góðum fréttum - ekki veitir af við þær erfiðu aðstæður sem nú eru í íslensku atvinnulífi. Á vef SA má nú sjá brot af því sem hefur borist í pósthólfið en við munum halda áfram að birta það sem berst í pósthólfið á næstu dögum og vikum. Smelltu á lúguna og kíktu á jákvæðu fréttirnar:
Smelltu og kíktu á jákvæðar fréttir 
Heimsins verðmætasta herðatré?
HerðatréHugmyndasamkeppni framhaldsskólanna stendur nú yfir undir yfirskriftinni Snilldarlausnir Marel. Samtök atvinnulífsins eru meðal stuðningsaðila keppninnar en hún gengur út á að þátttakendur eiga að skapa sem mest virði úr einföldum hlut. Árið 2009 reyna þátttakendur að hámarka virði herðatrés en virðið getur verið félagslegt, fjárhagslegt, tilfinningalegt, skemmtilegt, umhverfisvænt eða í raun hvað sem er. Fyrirmynd keppninnar er fengin frá Stanford háskólanum í Bandaríkjunum.

Sjá nánar »

      Efnahagsmál og skattar

Undanfarnar vikur hefur mikil umræða farið fram um framgang stöðugleikasáttmálans sem aðilar vinnumarkaðarins, sveitarfélög og ríkisstjórn Íslands skrifuðu undir í sumar. Síðastliðna daga og vikur hefur umræða um skattamál verið í forgrunni eftir að stjórn SA ákvað að segja ekki upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði þann 27. október. Á vef SA má finna fjölda frétta þar sem sjónarmið SA eru reifuð. Tengla á þær má nálgast hér að neðan - þær nýjustu eru fyrst.

Óraunhæfar hugmyndir um stóraukna skatta (10.11.)

Framkvæmdastjóri SA á Sprengisandi (9.11.)

Lítil lækkun stýrivaxta betri en engin (5.11)

Skoðanabann, tjáningarbann og hlustunarbann? (5.11.)

Umfjöllun um fund SA um stöðugleikasáttmálann (21.10)

      Verðmætasköpun

Álframleiðsla á Íslandi skilar 80 milljörðum af hreinum gjaldeyristekjum
ÍslandHannes G. Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri SA, bendir á í grein á vef SA að í landinu eru nú framleidd um 800 þúsund tonn af áli árlega og bein og óbein umsvif áliðnaðarins vegi u.þ.b. 5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að gjaldeyrisjöfnuður landsmanna sé rúmlega 10% hagstæðari en ef hann starfaði ekki í landinu. Það samsvari a.m.k. 80 milljörðum af hreinum gjaldeyristekjum á ári. Hann segir ýkjur áberandi í umfjöllun andstæðinga álvera og upplýsingar villandi. Annars vegar sé lítið gert úr mikilvægi stóriðju og hins vegar mikið úr hagnaði hennar.

Sjá nánar »

      Aðalfundur LÍÚ

Horfið verði frá hugmyndum um upptöku aflaheimilda
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009  mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um upptöku aflaheimilda og hvetur stjórnvöld til að hverfa nú þegar frá þeim. „Upptaka aflaheimilda er alvarleg ógn við íslenskan sjávarútveg og bein aðför að landsbyggðinni. Þessar hugmyndir hafa þegar valdið atvinnugreininni og tengdum þjónustugreinum fjárhagstjóni. Með upptökunni yrði gerður að engu sá ávinningur og sú hagræðing sem náðst hefur í sjávarútvegi undanfarin ár," segir m.a. í ályktun aðalfundarins.

Sjá nánar »

      Vinnumarkaðsmál

Ávarp Vilhjálms Egilssonar á ársfundi Vinnumálastofnunar
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti erindi á ársfundi Vinnumálastofnunar þann 30. október. Þar sagði hann m.a. að umræðan um nýtt fyrirkomulag atvinnuleysistrygginga væri rétt að hefjast og ýmsar útfærslur mögulegar. Ríkisstjórnin hafi ljáð máls á viðræðum en það væri grundvallarsjónarmið að þeir sem borgi beri meiri ábyrgð ásamt því að þeir sem fái þjónustuna komi að stjórnuninni. Fyrirkomulag trygginganna verði að vera þannig að þær feli í sér bæði hvata til árangurs og hagkvæmni. Þær hugmyndir sem rætt hafi verið um byggi ekki á því að hverfa aftur til eldra fyrirkomulags heldur að horfa til framtíðar.

Sjá nánar »

      Staða og horfur

Fjárfesting í atvinnulífinu hrynur
Vísitala efnahagslífsinsNiðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum hjá 500 stærstu fyrirtækja landsins var birt á vef SA þann 26. október en könnunin var gerð í septembermánuði. Að mati 95% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins eru aðstæður í efnahagslífinu slæmar eða mjög slæmar.

Sjá nánar »

       Fréttir af atvinnulífinu á sa.is

Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.

Smellið hér til að nálgast fréttayfirlit

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

Lífeyrismál:

Minnisblað SA um
skattlagningu lífeyrissparnaðar

 Á döfinni:

Alþjóðlega athafnavika

  Kynntu þér alþjóðlega athafnaviku!

16. - 22. nóvember 
 
Global Compact - kynntu þér málið
Eitthvað fyrir þig?
Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440