Nú þegar árið er hafið eru útistandandi alltof margar hindranir í veginum fyrir því að fjárfestingar í íslensku atvinnulífi verði nægilegar til þess að komast út úr kreppunni á þessu ári, ná einhverjum hagvexti á nýjan leik og leggja grunn að arðsömum framtíðarstörfum. Nauðsynlegt er að framgangur fjárfestinga í atvinnulífinu fái þann forgang sem þarf til þess að efnahagsáætlanir gangi eftir á þessu ári og hægt verði að kveikja einhver bjartsýnisljós í íslensku efnahagslífi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
400 stærstu: Afleitar aðstæður og versnandi horfur
Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar að mati 92% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins, 8% telja aðstæður hvorki góðar né slæmar - enginn telur þær góðar. Er þetta meðal niðurstaðna ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í desember 2009. Enn mun syrta í álinn að mati 43% stjórnenda sem telja að aðstæður í efnahagslífinu eigi eftir að verða enn verri eftir sex mánuði, 39% telja að aðstæður verði óbreyttar en aðeins 18% telja að það horfi til betri vegar. Fækkun starfsfólks er fyrirhuguð hjá 37% fyrirtækja á næstu 6 mánuðum, 49% hyggjast halda óbreyttum starfsmannafjölda en 14% ætla að bæta við sig starfsfólki.
Eitt brýnasta verkefnið í efnahagsmálum þjóðarinnar er að stuðla að því að störfum taki að fjölga á nýjan leik. Ljóst er að það gerist ekki nema með arðbærum fjárfestingum, einkum í útflutningsstarfsemi, og það er jafnframt forsenda þess að lífskjör geti batnað á nýjan leik. Efnahagslegur stöðugleiki, með lágri verðbólgu og vöxtum, er einnig mikilvæg forsenda fyrir jákvæðri þróun á vinnumarkaði því að við slíkar aðstæður verða fjárfestingar, framkvæmdavilji og fjölgun starfa meiri en ella. Þetta kemur fram nýrri greiningu SA á íslenskum vinnumarkaði.
Samtök atvinnulífsins hvetja eigendur og stjórnendur fyrirtækja til að nýta vel þau tækifæri sem gefast á komandi vikum, mánuðum og misserum til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins. Framundan er fjöldi aðalfunda þar sem tækifæri gefast til að auka hlut kvenna í atvinnulífinu en SA telja það bæði nauðsynlegt og skynsamlegt.
Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til tímamótafundar á Hótel Nordica. Þar verður greint frá því hvernig viðskiptalífið hyggst fjölga konum í stjórnum fyrirtækja. Sjá nánar »
Efnahagsmál
Skipuð verði ný samninganefnd í Icesave-deilunni
Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands og Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, lögðu það til í grein í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í vikunni að Alþingi skipi nýja samninganefnd án tafar til að leita lausna og ná sátt í Icesave-deilunni. Nefndin yrði skipuð fulltrúum allra þingflokka undir forystu utanríkisráðherra. Í greininni segja þeir mikilvægt að fá til liðs við nefndina erlendan fyrrverandi stjórnmálaleiðtoga til að gegna hlutverki sáttasemjara.
Samtök atvinnulífsins í samráði við Félag forstöðumanna ríkisstofnana efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 27. janúar um horfur í ríkisfjármálum 2011-2013. Fjallað verður um nauðsynlegar umbætur í fárlagagerðinni og hvort nauðsynlegt sé að grípa til róttækra aðgerða.
Áhrif fjármálakreppunnar á ríkisfjármál smámunir í samanburði við fjölgun aldraðra
Kostnaður vegna fjármálakreppunnar eru smámunir í samanburði við þann kostnað sem lendir á ríkissjóðum þróaðra ríkja vegna fjölgunar aldraðra á komandi áratugum. Þetta er niðurstaða skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) sem birtist á liðnu ári og fjallað var um í grein á vef SA á gamlársdag. Þar eru niðurstöður skýrslu AGS m.a. settar í samhengi við stöðu Íslands.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica eftir hádegi. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur en SA hvetja fólk úr atvinnulífinu til að taka daginn frá - sjáumst.
Starfsumhverfi atvinnulífsins
Óásættanleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar
Samtök atvinnulífsins eru aðilar að stöðugleikasáttmála við ríkisstjórnina sem undirritaður var 25. júní og ennfremur gaf ríkisstjórnin út sérstaka yfirlýsingu 28. október í tengslum við framlengingu kjarasamninga. Bæði í stöðugleikasáttmálanum og yfirlýsingunni er tekið fram að deilumál vegna stjórnar fiskveiða eigi að reyna að leysa í svokallaðri sáttanefnd. Frumvarp um breytingu á stjórn fiskveiða gengur þvert á fyrirheit ríkisstjórnarinnar og slík vinnubrögð eru á engan hátt ásættanleg gagnvart Samtökum atvinnulífsins. Þetta kemur fram í umsögn SA til Alþingis frá 15. desember 2009.
Nauðsynlegt var að hækka skatta vegna mikils hallareksturs ríkissjóðs í kjölfar hruns bankanna en ríkisstjórnin hefur nú þegar hækkað skatta umfram það sem samið var um í stöðugleikasáttmálanum sumarið 2009. Samstaða var um að skattar yrðu hækkaðir um 54 milljarða á árunum 2009-2011 en skattahækkanir á árunum 2009-2010 nema nú þegar rúmlega 72 milljörðum króna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir ríkisstjórnina ekki hafa svigrúm til frekari skattahækkana, ná þurfi tökum á rekstri ríkissjóðs með lækkun útgjalda. Erfiðar ákvarðanir séu framundan sem taka verði sem fyrst. Þetta kom fram á árlegum skattadegi Deloitte í vikunni.
Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440