Toppur
 

Fréttir vikunnar

Vaxtalækkun Seðlabanka Íslands

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í vikunni að lækka vexti bankans um 0,5 prósentustig. Stýrivextir fóru úr 10% í 9,5%, vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækkuðu í 8,0%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum urðu 9,25% og daglánavextir 11,0%. Nefndin telur að stöðugleiki íslensku krónunnar upp á síðkastið endurspegli árangur í framfylgd gjaldeyrishaftanna og smám saman hagstæðari undirliggjandi viðskipajöfnuð.

Nánar um málið hér, í janúarútgáfu Peningamála (Mynd: Sedlabanki.is)



Samráðsfundur hagsmunasamtaka atvinnulífs

Samráðsfundur allra helstu hagsmunasamtaka atvinnulífs var haldinn þann 26. janúar s.l. en til fundarins var boðað af formönnum Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífs. Tilefni fundarins var að ræða þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku atvinnulíf og samfélaginu í heild, helstu áskoranir mismunandi atvinnugreina, almenna stöðu efnahagsmála og samstarf stjórnvalda og atvinnulífs þessu til úrbóta.

Á fundinum komu fram verulegar áhyggjur af þróun mála síðustu mánuði, almennri stöðnun efnahagslífs og skorti á hagvaxtarhvetjandi úrræðum.  Einnig var lýst sérstökum áhyggjum af skilningsleysi stjórnvalda á þeim vandamálum sem heimili og atvinnulíf glíma við um þessar mundir.

Á næstu mánuðum og misserum munu hagsmunasamtök atvinnulífs samnýta krafta sína í meira mæli en áður, með það að markmiði að endurreisn efnahagslífs gangi hraðar og skilvirkar fyrir sig og að komið verði í veg fyrir frekari skerðingu á rekstrarumhverfi íslensks atvinnulífs.  Aðeins þannig muni hagvöxtur aukast og atvinnuástand batna. Nánar um fundinn hér.



Skýrsla: Rekstrarumhverfi fyrirtækja

Viðskiptaráð vinnur nú að skýrslu um rekstarumhverfi fyrirtækja á Íslandi, sem gefin verður út á Viðskiptaþingi þann 17. febrúar næstkomandi. Í skýrslunni er fjallað um könnun sem Viðskiptaráð lét framkvæma um rekstrarumhverfið á Íslandi og helstu mál sem brenna á fyrirtækjum í dag.

Samhliða þeirri vinnu hefur verið rætt við fjölmarga aðila í atvinnulífinu um hvaða málefni þau álíti í góðum farvegi og jafnframt hvað megi betur fara. Hafi félagar áhuga á að koma á framfæri skoðunum sínum á rekstrarumhverfi fyrirtækja, tillögum eða öðrum ábendingum varðandi skýrsluna er þeim bent á að hafa samband við Björn Þór Arnarson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Hægt er að ná í hann í síma 510-7107 eða með tölvupósti á bjorn@vi.is.



Breytt fyrirkomulag tollgæslu innan ESB

Undanfarna mánuði hafa ákveðnar breytingar tekið gildi innan ESB sem varða inn- og útflutning vara til og frá aðildarríkjum sambandsins. Með þessum breytingum hefur verið komið á nýju kerfi innan sambandsins til að tryggja öryggi tollgæslu. Hið nýja kerfi er iðulega nefnt EORI (Economic Operators Registration and Identification System) og felur m.a. í sér að frekari kröfur eru gerðar á upplýsingaskyldu.

Hér má finna úttekt Viðskiptaráðs á málinu.


Viðburðir framundan

Viðskiptaþing 2010: Dr. Richard Vietor

Dr. Richard Vietor, prófessor við Harvard Graduate School of Business Administration, mun halda fyrirlestur á Viðskiptaþingi 2010 um samkeppnishæfni þjóða en yfirskrift þingsins er Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf? - Rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni. Dr. Vietor kennir alþjóða stjórnmála- og hagfræði við Harvard, en hann skrifaði bókina How Countries Compete og mun hann í erindi sínum fjalla um Ísland út frá rannsóknum þeim sem hann birtir í bókinni.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um Dr. Vietor og hér má nálgast upplýsingar um fyrrnefnda bók. Skráning á þingið er hafin hér



Bjartsýni í vikulok

Í ljósi mikils vægis neikvæðra frétta undanfarin misseri er ekki úr vegi að minna á það sem vel gengur. Viðskiptaráð mun því reglulega draga saman það helsta sem telst til jákvæðra frétta, en það er gert til að minna á að þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hérlendis og erlendis er margt á réttri leið. Það er von Viðskiptaráðs að áður en um of langt líður horfi til betri vegar og samantekt af þessu tagi verði óþörf.

  • Á síðasta ári var metafgangur af vöruskiptum við útlönd, en hann nam 87,2 milljörðum króna.
  • Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.642 á síðasta ári, sem er fjölgun upp á 3% frá árinu 2008, en til samanburðar má nefna að gjaldþrot fyrirtækja voru 823 á sama tíma.
  • Vísitala neysluverðs lækkaði milli mánaða og verðbólga mældist 6,6% undanfarna 12 mánuði og hefur hún ekki mælst lægri frá því í janúar 2008.
  • AGS hækkaði í vikunni hagvaxtarspá sína og gerir ráð fyrir því að hagvöxtur verði að jafnaði 3,9% í heiminum öllum, en fyrri spá gerði ráð fyrir 3,1% hagvexti.
  • Hagnaður bandaríska tölvufyrirtækisins Apple hefur slegið öll met, en hann jókst um 50% á milli ára.

Góða helgi.


 
 
Föstudagur 29. janúar 2010

Í deiglunni:

Góð ráð dýr

FinnurÞegar horft er til þess tíma sem liðinn er frá hruni bankanna má sjá bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað. Hvað hið fyrra varðar, má segja að staðan nú sé skárri en hún hefði auðveldlega getað orðið. Samdráttur efnahagskerfisins hefur verið minni en spáð var, hluti bankakerfisins er þegar kominn úr beinni ríkiseign og gróska er í nýsköpunarstarfi. Hvað neikvæðu hliðina varðar stendur upp úr það mikla sundurlyndi, hnútukast og skotgrafahernaður sem hefur gegnsýrt umræðu frá októbermánuði árið 2008 og komið í veg fyrir hraðari og þróttmeiri endurreisn hagkerfisins. Meira...


Nýtt efni:



Efni á ensku:
The Iceland Economic Situation: Status Report (Félagar ráðsins geta nálgast skýrsluna á birna@vi.is)


Viðburðir:

10.2.2010
Virkjum karla og konur

17.2.2010
Viðskiptaþing 2010

17.2.2010
Aðalfundur 2010

Nánari upplýsingar um viðburði framundan má nálgast hér.


Gamla kornið:

Menn hafa tekið eftir því, að friður og hagsæld ríkir í landinu þegar verslunin er fjörug og frjáls, en sje hún kúguð og kyrkt, er kreppa við hvers manns dyr. - Úr erindi Garðars Gíslasonar um verslun á árinu 1931 í Verslunartíðindum Verslunarráðs Íslands í janúar 1932.


 
Botn
 

Fari svo að persónugreinanlegar upplýsingar safnist við útgáfu/lestur þessa fréttabréfs þá verður ekki unnið með þær af hálfu Viðskiptaráðs Íslands né heldur undir nokkrum kringumstæðum verður slíkum upplýsingum miðlað/dreift til þriðja aðila. Með persónugreinanlegar upplýsingar verður farið skv. lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að koma að fullu í veg fyrir mögulega söfnun upplýsinga eru móttakendur fréttabréfs þessa, sem svo kjósa, hvattir til að afskrá sig hér.

 

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440