Atvinnuleysið ekki ásættanlegt – atvinnu fyrir alla
„Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram víðtæka stefnumörkun undir heitinu „Atvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010". Bág staða atvinnulífsins, hallærisrekstur fjölmargra fyrirtækja, afturför í velferðarmálum, fækkun starfa og 10% atvinnuleysi eru ekki ásættanleg framtíðarsýn að mati Samtaka atvinnulífsins. Þess vegna verður að grípa til aðgerða." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir fyrirliggjandi efnahagsspár gera ráð fyrir um 2% árlegum hagvexti á næstu árum. „Þetta er of lítið til þess að efnahagslífið nái sér á strik og fyrirtæki ráði fólk í ný störf þannig að atvinnuleysi minnki og lífskjör batni."
Samtök atvinnulífsins kynntu í dag nýja stefnumörkun stefnu um atvinnu- og efnahagsmál sem miðar að sköpun nýrra starfa og uppbyggingu atvinnulífsins á þessu ári og í næstu framtíð. Meginmarkmiðið er að útrýma atvinnuleysi og tryggja að ný störf verði til fyrir þá sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum. Um er að ræða stefnumörkun á fjölmörgum sviðum sem miða að því að koma Íslandi af stað. Yfirskrift þess er Atvinna fyrir alla.
Samkvæmt rannsókn Creditinfo eru 4.321 fyrirtæki á Íslandi með blandaðar stjórnir karla og kvenna og jafnt kynjahlutfall. Fram til loka ársins 2013 hefur viðskiptalífið sett sér það markmið að auka fjölbreytni atvinnulífsins enn frekar. Á næstu vikum og misserum munu því SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Creditinfo og Leiðtoga-Auður hvetja fyrirtæki og eigendur þeirra til auka að fjölbreytni í forustusveit sinni.
Karlar eru tveir þriðju hlutar starfsmanna á almennum vinnumarkaði en konur einn þriðji. Karlar vinna líka lengur en þeir skila 71% vinnustunda á almennum vinnumarkaði en konur 29%. Hjá hinu opinbera eru konur þrír fjórðu hlutar starfsmanna en karlar fjórðungur.Þar skila konur skila tveimur þriðju hluta vinnustunda en karlar þriðjungi. Meðalvinnutími karla er rúmir 46 tímar á viku en konur vinna tæpa 36 tíma.
Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvatti stjórn og stjórnarandstöðu til þess að standa saman í Icesave-málinu í ályktun þann 25. janúar. Í henni segir m.a.:
Stjórnmálaflokkarnir þurfa að ná samkomulagi um nýja samningsskilmála og ná betri samningum en nú liggja fyrir. Brýn þörf er á víðtækri samstöðu um lausn þessa mikilvæga máls.
Enginn einstakur liður í hagstjórninni skiptir jafn miklu máli við núverandi aðstæður og árangurinn í ríkisfjármálum. Þar skilur algerlega á milli feigs og ófeigs. Þetta sagði Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, á morgunverðarfundi SA um horfurnar í fjármálum ríkisins til ársins 2013. Björn sagði ennfremur að af þeim meginverkefnum sem framundan eru í hagstjórninni séu ríkisfjármálin mest krefjandi. Á síðasta ári hafi ríkisfjármálum verið beitt til að milda áhrif efnahagsáfallsins en þann slaka þurfi nú að vinna hratt til baka.
Mikill samdráttur í fjárfestingum atvinnuveganna á síðasta ári og takmörkuð áform um fjárfestingar á árinu 2010 valda því að ástæða er til þess að hafa áhyggjur af þróuninni í atvinnumálum. Óvissa um framtíðina, háir vextir, gjaldeyrishöft, skattahækkanir og minnkandi kaupgeta stuðla almennt að slæmu andrúmslofti fyrir fjárfestingar. Ef dráttur verður á áformum um fjárfestingar í virkjunum og orkufrekum iðnaði á þessu ári eru líkur á því að fjárfestingar atvinnuveganna verði minni í hlutfalli við landsframleiðslu en þær hafa verið frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formaður SA
Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna.Vilmundur Jósefsson er hagfræðingur frá H.Í. og framkvæmdastjóri Gæðafæði en hann var varaformaður SA um þriggja ára skeið áður en hann tók við formennsku í SA á síðasta ári. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var áður formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000.
21. apríl - takið daginn frá
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.
Yfirskrift fundarins og dagskrá verður kynnt þegar nær dregur en venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 (í sal H) en opin dagskrá hefst kl. 15 (í sal A&B) og stendur til kl. 16:30 þegar atvinnulífið kveður veturinn 2009-2010 og fagnar sumri. SA hvetja fólk úr atvinnulífinu til að taka daginn frá - sjáumst.
Starfsumhverfi atvinnulífsins
Fyrningarleiðin er ófær og verður aldrei þoluð
„Fyrningarleiðin vinnur gegn sjávarútvegi, sjávarbyggðum og þjóðarhag og verður aldrei þoluð." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, á fjölmennum baráttufundi íbúa í Vestamannaeyjum 21. janúar. Vilhjálmur sagði löggjöf um stjórn fiskveiða byggja á málamiðlunum en mestu skipti að sjávarútvegur sé samkeppnishæf atvinnugrein sem skapi starfsfólki góðar tekjur. Þannig leggi sjávarútvegurinn mest til samfélagsins en árlegar útflutningstekjur greinarinnar nema 200 milljörðum á ári. Vilhjálmur sagði lagalegan stöðugleika nauðsynlegan í greininni og gera verði þá grundvallarkröfu til stjórnvalda að sjávarútvegurinn fái starfsfrið.
Á undanförnum árum hefur umhverfisráðherra ítrekað staðfest skipulagstillögur sveitarfélaga þar sem framkvæmdaaðilar hafa greitt kostnað vegna breytinga á aðalskipulagi. Þessi háttur hefur tíðkast í mörg ár og aldrei verið gerð við það athugasemd. Dæmi eru um sveitarfélög sem gert hafa sérstakar samþykktir í þessum efnum þannig að kostnaður við breytingu á aðalskipulagi falli á þann sem breytingarinnar óskar. Þann 29. janúar skrifaði umhverfisráðherra hins vegar tveimur sveitarfélögum bréf og synjaði staðfestingar aðalskipulagi þeirra vegna þess að hrepparnir gerðu samkomulag um að framkvæmdaaðili greiddi hluta kostnaðar við gerð aðalskipulags.
Umsögn SA til Samkeppniseftirlitsins vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja
Samtök atvinnulífisins sendu í lok janúar Samkeppniseftirlitinu umsögn um umræðuskjal stofnunarinnar sem fjallar um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. SA telja jákvætt að Samkeppniseftirlitið hafi sett fram góða greiningu á flóknu úrlausnarefni en benda á að svör skorti við því hvernig leysa eigi úr raunverulegum málum. Þá telja SA óviðeigandi að stofnunin óski eftir auknum valdheimildum í umræddu umræðuskjali til að skipta upp fyrirtækjum en fyrir því eru engar efnislegar forsendur.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440