Spacer
Spacer Spacer

     Leiðari

Atvinna fyrir alla – aðgerðaáætlun 2010
Samtök atvinnulífsins hafa sett fram markmið um að þjóðin hafi endurheimt fyrra atvinnustig og lífskjör á árinu 2015. Þetta er hægt með því að setja atvinnusköpun í forgang, sérstaklega með fjárfestingum og vexti í útflutningsgreinum. Núverandi spár gera ráð fyrir 2% árlegum hagvexti en það er of lítið til þess að nógu mörg störf skapist til að það dragi úr atvinnuleysinu. Náist 3,5% hagvöxtur á næstu árum er árangur samt ekki nægur til að eyða atvinnuleysi. Það þarf að setja djarfari hagvaxtarmarkmið og stilla saman strengi til þess að ná þeim. Um 5% árlegan hagvöxt þarf til.

Sjá nánar »

     Fréttir

Mikið traust til íslenskra fyrirtækja
Traust til vinnuveitanda er mikiðÍslendingar eru mjög jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja og traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst  í árlegum mælingum Capacent Gallup á trausti til  stofnana og embætta. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Nærri 88% eru jákvæð gagnvart sínum vinnustað - aðeins rúm 4% neikvæð. Þá bera yfir 81% Íslendinga mikið traust til síns vinnuveitanda en aðeins tæp 7% bera til hans lítið traust.

Sjá nánar »

Stórfundur um atvinnumál í fyrramálið - föstudaginn 12. mars á Nordica
Um 300 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi, stjórnmálamenn, fulltrúar sveitarfélaga, ríkisstofnana og verkalýðshreyfingar, hafa boðað komu sína á opinn fund SA í fyrramálið, föstudaginn 12. mars, um stöðu atvinnumála og nauðsynlegar aðgerðir. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica kl. 8:30-10:00. Áhugasamir eru hvattir til að slást í hópinn og skrá sig nú þegar en skráningu lýkur í dag.

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ flytja erindi á fundinum. Í kjölfarið fara fram umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri er Vilmundur Jósefsson, formaður SA.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU

Taktu mynd af þinni verðmætu sköpun og sendu SA
6 á dag!Á hverjum virkum degi eru sköpuð verðmæti á Íslandi fyrir um sex milljarða króna. Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins gegna mikilvægu hlutverki í þeirri sköpun en innan raða SA eru um 2.000 fyrirtæki þar sem starfar um helmingur launamanna á Íslandi. Í tilefni aðalfundar SA 2010 viljum við festa verðmætasköpun atvinnulífsins á mynd og sýna úr hverju stoðir íslensks atvinnulífs eru gerðar.

Sjá nánar »

   ÍSLAND AF STAÐ

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.  Yfirskrift fundarins er ÍSLAND AF STAÐ. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 (í sal H) en opin dagskrá hefst kl. 15 (í sal A&B) með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.

Þá munu Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja og Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja kynna hugmyndir sínar um hvað þurfi til að koma Íslandi af stað.

Fundi lýkur kl. 16:30 þegar atvinnulífið kveður veturinn 2009-2010 og fagnar sumri. SA hvetja fólk úr atvinnulífinu til að taka daginn frá og skrá sig á aðalfund SA - komum Íslandi af stað!

Aðalfundur SA 2010 - 21. apríl

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU

Kosning formanns SA hefst 22. mars
Vilmundur JósefssonKosning formanns Samtaka atvinnulífsins hefst þann 22. mars nk. en félagsmenn fá send kjörgögn í næstu viku. Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna en kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag 21. apríl 2010. Vilmundur Jósefsson er hagfræðingur frá H.Í. og framkvæmdastjóri Gæðafæðis en hann var varaformaður SA um þriggja ára skeið áður en hann tók við formennsku í SA á síðasta ári. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var áður formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000.

      Skipulag heilbrigðiskerfisins

Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?
Fundur um heilbrigðismál 18. marsSamtök atvinnulífsins efna til fundar um heilbrigðismál og skipulag heilbrigðiskerfisins, fimmtudaginn 18. mars, á Hótel Nordica í samráði við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Reykjavíkur, Félag forstöðumanna ríkisstofnanna og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við  Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins er Hvernig fáum við það besta út úr heilbrigðiskerfinu?

Sjá nánar »

 

      Efnahagsmál

Full atvinna 2015 - hvað þarf til?
Atvinnuleysi og hagvöxturÁ árunum 1963 til 2009 var hagvöxtur, þ.e. raunvöxtur landsframleiðslunnar, 3,6% að meðaltali árlega en störfum fjölgaði um 1,8% að meðaltali. Þannig fjölgaði störfum um hálfa prósentu við hverja prósentu í hagvexti á þessu tímabili. Á síðustu tveimur áratugum hefur hagvöxtur á Ísland ekki verið eins vinnuaflsfrekur og áður var og þetta hlutfall farið lækkandi. Á árunum 1999-2009 fjölgaði störfum um 0,33% að jafnaði við hverja prósentu í hagvexti og á árunum 1989-1999 um 0,38%. Þessi hlutföll verður  að hafa í huga þegar fjallað er um hvað þurfi mikinn hagvöxt til vinna á bug á núverandi atvinnuleysi og mæta þeirri fjölgun sem fyrirsjáanleg er á fólki á vinnualdri næstu árin.

Sjá nánar »

Vöxtur og velferð forgangsmál í Evrópu
Vöxtur er forsenda velferðarEvrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, hafa nýverið sent frá sér stefnumörkun sem mælir með markvissum aðgerðum til að vinna Evrópu út úr þeirri djúpstæðu kreppu sem herjað hefur á flest ríki í álfunni á undanförnum tveimur árum. Stefnumörkunin er sett fram í hnitmiðaðri skýrslu þar sem greindar eru helstu áskoranir sem evrópskt atvinnulíf stendur frammi fyrir og mælt með skilvirkum lausnum til að snúa aftur á braut hagvaxtar og velferðar. Án kraftmikilla fyrirtækja sem skapa störf og verðmæti molnar fljótt undan velferðarkerfinu.
 

      Aðildarfélög SA

Ályktun Iðnþings 2010
„Hagsæld og velferð verður ekki tryggð á Íslandi án vaxtar og nýsköpunar. Vöxtinn þarf að sækja til atvinnustarfsemi sem skapar eins mikinn virðisauka og kostur er, greiðir góð laun og skapar þjóðarbúinu tekjur. Stóraukin skattheimta vinnur gegn þessum markmiðum." Þetta segir m.a. í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins.

Sjá nánar »

Ályktun aðalfundar SART - Samtaka rafverktaka
„Aðalfundur SART- Samtaka rafverktaka haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn  5. mars 2010,  ítrekar og mótmælir harðlega aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart heimilum og fyrirtækjum í landinu. Þá lýsir fundurinn vanþóknun sinni á framgöngu þeirra ráðherra og alþingismanna sem virðast hafa sett sér það eina markmið að setja fótinn fyrir fjárfestingar í virkjunum og stóriðju og hindra þannig framgang verklegra framkvæmda sem þjóðin kallar eftir. Aðalfundur SART skorar á þingmenn allra flokka að sameinast nú um heildarhagsmuni þjóðarinnar og láta verkin tala."

Sjá nánar »

Ályktun aðalfundar Samorku
 „Bein erlend fjárfesting, með tilheyrandi hagvaxtaráhrifum, hefur e.t.v. aldrei verið íslensku atvinnulífi mikilvægari en einmitt um þessar mundir. Endurnýjanleg orka er eitt helsta aðdráttaraflið í þeim efnum enda henni ætlað stórt hlutverk í endurreisn íslensks efnahagslífs, m.a. í efnahagsáætlunum stjórnvalda. Íslensk orkufyrirtæki lýsa sig reiðubúin til þátttöku í endurreisninni og munu þar leggja sitt af mörkum eins og kostur er." Þetta kemur m.a. fram í ályktun aðalfundar Samorku sem fram fór þann 19. febrúar.
 
Vika verslunar og þjónustu 11.-17. mars 2010
Spilaðu með!Samtök verslunar og þjónustu, í samvinnu við VR, blása til sérstakrar „Viku verslunar og þjónustu" dagana 11.-17. mars. Tilgangurinn er tvíþættur. Að vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu, atvinnugreinar þar sem um fjórði hver Íslendingur starfar og að hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt til að „spila með" og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki.

Sjá nánar »

   Starfsumhverfi fyrirtækja

Verklagsreglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa unnið sameiginlegar verklagsreglur um úrlausn á skuldavanda fyrirtækja í samræmi við ákvæði laga nr. 107/2009, um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. Þessar verklagsreglur hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu (FME), með bréfi 2. mars 2010. Gerður er fyrirvari um að Samkeppniseftirlitið veiti undanþágu fyrir slíkum samræmdum reglum fjármálafyrirtækja á grunni 15. gr. samkeppnislaga. SFF eiga í samskiptum við Samkeppniseftirlitið hvað þann þátt varðar og vonast til að slík undanþága liggi fyrir fljótlega.

Sjá nánar »

      Jafnréttismál

Bankaráð Landsbankans jafnar hlut kynjanna
Bankaráð Landsbankans samþykkti á fundi sínum 17. febrúar 2010, tillögu þess efnis að fyrirtækið skuli tryggja fyrir árslok 2013 að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40% í forystusveit bankans og dótturfélaga hans. Með því hefur bankinn sett sér sömu markmið og sett voru í samstarfssamningi samtaka í atvinnulífinu frá maí 2009. Sá samningur er að auki undirritaður af fulltrúum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi.

Sjá nánar »

Ný rannsókn: Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007
Hagstofa Íslands hefur gefið út hagtíðindaheftið Launamunur kynjanna á almennum vinnumarkaði 2000-2007. Í því er greint frá helstu niðurstöðum úr rannsókn á launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði. Rannsóknin er byggð á gagnasöfnum Hagstofunnar og var framkvæmd í kjölfar samkomulags á milli Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Hagstofu Íslands í tengslum við kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins í febrúar 2008.

Sjá nánar » 

       Útgáfa Samtaka atvinnulífsins

Atvinna fyrir alla á vef SA
Atvinna fyrir allaAtvinna fyrir alla - aðgerðaáætlun 2010 um uppbyggingu atvinnulífsins er komin út. Um er að ræða nýja stefnumörkun SA um atvinnu- og efnahagsmál sem miðar að sköpun nýrra starfa og uppbyggingu atvinnulífsins á þessu ári og í næstu framtíð. Meginmarkmiðið er að útrýma atvinnuleysi og tryggja að ný störf verði til fyrir þá sem koma út á vinnumarkaðinn á næstu árum. Um er að ræða stefnumörkun á fjölmörgum sviðum sem miða að því að koma Íslandi af stað. Rafrænt eintak ritsins má nú nálgast á vef SA.

Sjá nánar »

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440