Meginmarkmið Samtaka atvinnulífsins er að koma atvinnulífinu af stað og skapa störf á nýjan leik þannig að forsendur skapist fyrir batnandi lífskjörum. Laun verða hins vegar ekki hækkuð frekar meðan atvinnuleysi er í hámarki og engar horfur á því að atvinnulífið rétti úr kútnum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir gerð kjarasamninga næsta haust verða meginverkefni SA á næstunni og niðurstaða þeirra muni skipta sköpum um þróun íslensks efnahagslífs á næstu árum og jafnvel áratug.
Helmingur aðildarfyrirtækja SA hyggst ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á þessu ári en fjórðungur hyggst fjölga starfsmönnum og sama hlutfall fækka þeim. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar SA meðal aðildarfyrirtækja. Niðurstaðan bendir til þess að störfum á almennum vinnumarkaði fækki um rúmlega 1.500 á árinu.
Rúmlega sex af hverjum tíu (62%) forsvarsmanna aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telja að umtalsverð lækkun stýrivaxta og samsvarandi lækkun útlánsvaxta banka myndi hvetja fyrirtæki þeirra til fjárfestinga. Þetta kemur fram í könnun sem SA létu gera meðal aðildarfyrirtækja í byrjun apríl 2010. Þetta er sama niðurstaða og fram kom í sams konar könnun SA í október 2009. Meira en fjórir af hverjum fimm forsvarsmanna veitufyrirtækja svöruðu spurningunni játandi og þrír af hverjum fjórum í ferðaþjónustu. Meirihluti stjórnenda í öllum atvinnugreinum telur að umtalsverð lækkun vaxta muni örva fjárfestingu.
SA styðja hugmyndir um flýtingu samgönguframkvæmda
Samgönguráðherra hefur kynnt hugmyndir um flýtingu stórra framkvæmda í samgöngumálum. Um er að ræða þær þrjár leiðir sem liggja til og frá höfuðborginni, þ.e. tvöföldun Vesturlandsvegar, tvöföldun Suðurlandsvegar auk nýrrar brúar yfir Ölfusá, að lokið verði við tvöföldun Reykjanesbrautar og Vaðlaheiðargöng. Kostnaður er áætlaður samtals 33 milljarðar króna og geta framkvæmdir hafist þegar á þessu ári og lokið árið 2014. Stofnað verði sérstakt félag í eigu ríkissjóðs um þessar framkvæmdir sem taki lán hjá lífeyrissjóðum á svipuðum vöxtum og skuldabréf Íbúðalánasjóðs bera og hófleg veggjöld standi straum af endurgreiðslu lána og vaxta.
Næstu daga birtast á vef SA sjónvarpsinnslög undir yfirskriftinni Rödd atvinnulífsins. SA brugðu sér af bæ nýverið og heimsóttu félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá á vefnum dagana fyrir og eftir aðalfund SA sem fram fer 21. apríl á Hótel Nordica. Innslögin verða einkennd með SA-TV og birt á fréttasíðu SA og á www.sa.is/tv.
Friðrik Pálsson ræðir um ferðaþjónustuna og atvinnulífið
Það þarf að bregðast skjótt við og hjálpa þeim fyrirtækjum sem voru í eðlilegum rekstri fyrir hrun og endurskipuleggja efnahag þeirra þannig að hægt sé að tryggja störf og tryggja ríkinu skatttekjur. Jafnframt þarf að lækka vexti og koma peningum sem eru inni í bönkunum út í atvinnulífið. Þetta segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, sem á Rödd atvinnulífsins fimmtudaginn 15. apríl. Friðrik segist fá fjölmarga gesti til sín frá Bretlandi og Hollandi sem eigi þar yndislegar stundir og viðurkenni flestir fúslega að hafa aldrei heyrt minnst á Icesave. Hægt er að horfa á viðtalið við Friðrik á vef SA þar sem hann ræðir m.a. um markaðsmál, markaðssetningu landsins og mikilvægi útflutnings.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift fundarins er ÍSLAND AF STAÐ. Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 14 (í sal H) en opin dagskrá hefst kl. 15 (í sal A&B) með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.
Þá munu Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja og Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja kynna hugmyndir sínar um hvað þurfi til að koma Íslandi af stað.
Fundi lýkur kl. 16:30 þegar atvinnulífið kveður veturinn 2009-2010 og fagnar sumri. SA hvetja fólk úr atvinnulífinu til að taka daginn frá og skrá sig á aðalfund SA - komum Íslandi af stað!
Kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir en henni lýkur á hádegi 21. apríl. Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, gefur áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna 21. apríl 2010 á Hilton Reykjavík Nordica. Vilmundur Jósefsson er hagfræðingur frá H.Í. og framkvæmdastjóri Gæðafæðis en hann var varaformaður SA um þriggja ára skeið áður en hann tók við formennsku í SA á síðasta ári. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var áður formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000.
Tilboð á gistingu fyrir aðalfundargesti
Hilton Reykjavík Nordica býður aðalfundargestum sem koma langt að sérstakt tilboð á gistingu þann 21. apríl - Kr. 10.800 fyrir eins manns herbergi ásamt morgunverði, kr.11.800 fyrir tveggja manna herbergi ásamt morgunverði. Bókun í síma 444-4000 eða með tölvupósti á icehotels@icehotels.is. Gefa þarf upp bókunarnúmer SA: 506949.
Skrifstofa SA
Halldór Árnason til SA
Halldór Árnason, hagfræðingur, hefur verið ráðinn til starfa á hagdeild Samtaka atvinnulífsins og hefur Halldór þegar hafið störf. Halldór starfaði áður sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og staðgengill ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um sjö ára skeið. Áður starfaði hann m.a. sem skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins og Fjárlaga- og hagsýslustofnunar í um áratug.
Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, hefur verið ráðinn til starfa hjá eftirlitstofnun EFTA (ESA) og hefur hann látið af störfum hjá SA. Samtök atvinnulífsins þakka Guðlaugi fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi. Guðlaugur hóf störf hjá SA í ársbyrjun 2005. Hann starfaði m.a. sem yfirhagfræðingur Samkeppnisstofnunar og hagfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA áður en hann hóf störf hjá SA.
Yfir 15.000 Íslendingar eru án atvinnu og um 1.500 til viðbótar á atvinnuleysisskrá að hluta. Þá hefur stór hópur fólks orðið að minnka við sig vinnu og horfast í augu við lægri tekjur. Samtök atvinnulífsins telja þetta óviðunandi og vilja bregðast við, rjúfa kyrrstöðuna sem ríkir í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar og hefja uppbyggingu af krafti. Ef fylgt væri öflugri atvinnustefnu gæti kreppunni lokið á þessu ári.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440