Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 fór fram á Hótel Nordica 21. apríl sl. á síðasta degi vetrar. Hefðbundin aðalfundarstörf hófust kl. 14 en opin dagskrá kl. 15 undir yfirskriftinni ÍSLAND AF STAÐ! Hátt í 400 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til opinnar dagskrár fundarins.
Á vef SA má nú nálgast allt efni aðalfundarins, nýja ársskýrslu SA, ræður frummælenda, upplýsingar um kjör formanns SA og varaformanns, ásamt upplýsingum um kjör nýrrar stjórnar og framkvæmdastjórnar SA fyrir starfsárið 2010-2011. Þessar upplýsingar er einnig að finna í þessari aukaútgáfu fréttabréfs SA sem kemur út í kjölfar aðalfundar SA.
Samtök atvinnulífsins þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína á aðalfund SA 2010 - sjáumst að ári.
Á aðalfundi SA 21. apríl 2010 var Vilmundur Jósefsson kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Vilmundur var rétt kjörinn formaður starfsárið 2010-2011 með 87% greiddra atkvæða.
Vilmundur Jósefsson er hagfræðingur frá H.Í. og framkvæmdastjóri Gæðafæðis en hann var varaformaður SA um þriggja ára skeið áður en hann tók við formennsku í SA á síðasta ári. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var áður formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000.
Grímur Sæmundsen endurkjörinn varaformaður SA
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins 21. apríl 2010 var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., endurkjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA.
Grímur tók við sem varaformaður í Samtökum atvinnulífsins á árinu 2009 en hann hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA.
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2010-2011
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2010 til 2011. Ný inn í stjórnina koma þau Aðalheiður Héðinsdóttir, Ásbjörn Gíslason, Guðmundur H. Jónsson, og Hjörleifur Pálsson. Úr stjórninni ganga Gunnar Karl Guðmundsson, Kristín Pétursdóttir og Jón Sigurðsson. Vilmundur Jósefsson var kjörinn formaður af félagsmönnum SA 2010-2011 en stjórn SA er skipuð 20 mönnum auk formanns. Stjórn SA mótar stefnu og megináherslur samtakanna, m.a. fyrir gerð almennra kjarasamninga.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins 21. apríl 2010 var skipuð ný framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2010-2011. Framkvæmdastjórn SA er skipuð formanni og varaformanni samtakanna ásamt 6 mönnum sem stjórnin kýs úr hópi stjórnarmanna. Í framkvæmdastjórn SA 2010-2011 sitja auk Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Gríms Sæmundsen, varaformanns SA, Birna Einarsdóttir, Finnur Árnason, Friðrik J. Arngrímsson, Helgi Magnússon, Margrét Kristmannsdóttir og Rannveig Rist.
Ræða formanns Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi 2010
„Íslensk fyrirtæki verða að fjárfesta, hafa greiðan aðgang að erlendum lánsfjármörkuðum án gjaldeyrishafta, lágum vöxtum og bankakerfi með góð alþjóðleg tengsl til þess að standast alþjóðlega samkeppni. Þau verða að hafa aðgang að markaði fyrir skuldabréf og hlutabréf og endurreisn trausts á verðbréfamarkaði er einn lykilþáttur í uppbyggingunni. Fyrirtækin verða að hafa svigrúm til þess að stunda nýsköpun, skapa ný störf og geta hagnast og greitt eigendum sínum eðlilegan arð. Fjárfestingar í útflutningsgreinum þurfa að verða á breiðu sviði, allt frá orkufrekum iðnaði, meðalstórum iðnaðarkostum til uppbyggingar ferðaþjónustu."
Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. Hann sagði alla ábyrga aðila - stjórnvöld, hagsmunasamtök, fólk og fyrirtæki verða að standa saman um þessi lykilatriði.
Í ávarpi sínu fjallaði Vilmundur m.a. um komandi kjarasamninga, skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, frávísun SA frá stöðugleikasáttmálanum og andstöðu SA við frekari skattahækkanir, misrétti í lífeyrismálum og nauðsynlegar fjárfestingar í atvinnulífinu til að skapa ný störf.
„Í mínum huga vegnar okkur best með frjálsum viðskiptum í opnu og alþjóðlegu hagkerfi þar sem pólitíska valdið setur atvinnulífinu laga- og regluramma og hefur virkt eftirlit með því að honum sé framfylgt. Samskiptin fari eftir almennum leikreglum sem séu gegnsæjar þannig að hægt sé á hverjum tíma að sannreyna að þeim hafi verið fylgt." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra m.a. á aðalfundi SA 2010.
Á aðalfundi SA fluttu fjórir stjórnendur úr atvinnulífinu erindi um hvernig hægt er að koma Íslandi af stað, þau Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og formaður Samtaka fjármálafyrirtækja,Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja og Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja.
Í tilefni af aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 2010 heimsóttu SA félagsmenn og frumkvöðla víðs vegar um landið til að skoða fjölbreytta framleiðslu og verðmætasköpun í öllum regnbogans litum. Afraksturinn má sjá í sjónvarpsinnslögum á vef SA. Slóðin er: www.sa.is/tv.
ÁRSSKÝRSLA SA 2009-2010
Rafrænt eintak á vef SA
Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2009-2010 kom út á aðalfundi SA 21. apríl. Þar er að finna greinagott yfirlit yfir starfsemi samtakanna á liðnu starfsári.
Í skýrslunni er einnig ítarleg umfjöllun um þróun efnahags- og atvinnumála undanfarið ár auk yfirlits um kjaramál og samninga. Rafrænt eintak skýrslunnar má nálgast á vef SA.
Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome. www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440