Rannís boðar til kynningar á Rannsóknasjóði í tengslum við næsta umsóknarfrest sem er 1. júní 2010. Farið verður yfir hlutverk sjóðsins, þá styrkmöguleika sem eru í boði auk þess sem fjallað verður um umsóknir og mat þeirra. Í lokin verða fyrirspurnir og umræður. Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Sjóðurinn styrkir skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Kynningin fer fram á Grand Hótel Reykjavík 4. hæð og hefst kl. 9:00. Léttur morgunverður fyrir fundargesti frá 8:45. Skráning á rannis@rannis.is