Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Glötuð tækifæri?
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að tölur um vinnumarkaðinn á 1. ársfjórðungi gefi tilefni til bjartsýni þar sem störfum í heild fækki lítið milli ára og störfum á landsbyggðinni fjölgi umtalsvert. Atvinnulífið gæti því byrjað að vaxa á 2. ársfjórðungi ef allt væri eðlilegt og árið í heild komið út á núlli eða með örlitlum hagvexti í stað 2-3% samdráttar sem nú er spáð. „Aðeins eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar nú þeirri þróun," segir Vilhjálmur en bendir þó á að þetta gerist án þess að möguleikar séu nýttir til að koma atvinnulífinu á verulegan skrið.

„Ennþá eru fjárfestingar í atvinnulífinu í lágmarki og fyrirtæki, stór og smá, halda að sér höndum. Ennþá hefur ekki tekist að hrinda af stað stórum fjárfestingum á vegum hins opinbera með aðkomu lífeyrissjóðanna eins og talað var um síðastliðið sumar að gera fyrir 1. september 2009."

Sjá nánar »

   Fréttir

Skattahækkanir vanmetnar í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Samtök atvinnulífsins telja að svigrúm ríkisstjórnarinnar til skattahækkana á árunum 2009-2011 sé nú þegar fullnýtt og ná verði markmiðum um bætta afkomu ríkissjóðs 2011 með gjaldalækkunum. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá 8. apríl eru skattahækkanir á Íslandi vanmetnar um 2% af landsframleiðslu en samkvæmt fjárlögum 2010 aukast skatttekjur ríkissjóðs um 50 milljarða króna frá fjárlögum 2009 að teknu tilliti til samdráttar í eftirspurn en útgjöld ríkissjóðs að frátöldum vaxtagjöldum aukast um 2 milljarða króna.

Til að ná yfirlýstum markmiðum um jafnvægi í ríkisfjármálum verður þörf á aðgerðum til að bæta afkomu ríkissjóðs í fjárlögum 2011 sem nema allt að 3% af landsframleiðslu eða um 50 milljörðum króna og um 2% af landsframleiðslu hvort ár 2012 og 2013.

Þriðja stoð lífeyriskerfisins - 300 milljarðar í séreignarsparnaði
Kostir núverandi fyrirkomulags  fulltrúalýðræðis við stjórnun lífeyrissjóða sem samið er um í kjarasamningum eru ótvíræðir, vegna þess að  það tryggir jafnvægi milli ólíkra hagsmuna, langtímastöðugleika og vönduð vinnubrögð. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í grein á vef SA um lífeyrismál og séreignarsparnað en áætlað er að séreignarsparnaður landsmanna nemi nú allt að 300 milljörðum króna. Í greininni fjallar Hannes m.a. um hugmyndir á vettvangi stjórnmálanna um breytingar á umgjörðinni um lífeyrissjóði og lífeyrissparnað sem hingað til hefur verið sátt um, m.a. skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði sem bæði SA og ASÍ hafa eindregið lagst gegn.
 
Auka þarf útflutning um 7-8% á ári
G.Sæm á ÚtflutningsþingiÁ Útflutningsþingi sem fór nýverið fram sagði Grímur Sæmundsen, varaformaður SA, nauðsynlegt að setja markmið um að auka útflutning frá Íslandi um 7-8% á ári og að vöxturinn verði 1-2% umfram árlega aukningu alþjóðaviðskipta. Með markvissum og samhæfðum aðgerðum er hægt að auka útflutning um 60-70 milljarða á ári sagði Grímur. „Til þess að það verði unnt, verður ríkisvaldið að taka höndum saman við atvinnulífið, verkalýðshreyfinguna og sveitarfélög um nauðsynlegar aðgerðir og nýja endurreisnaráætlun, sem komið getur atvinnulífinu á réttan kjöl. Innihaldslausar yfirlýsingar eins og gefnar voru við gerð stöðugleikasáttmálans sáluga síðastliðið sumar duga ekki í þeim efnum."

Sjá nánar »

   Fundir og ráðstefnur

Stjórnarhættir fyrirtækja - 25. maí á Grand Hótel Reykjavík

Þriðjudaginn 25. maí standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi fyrir ráðstefnu um stjórnarhætti á Íslandi. Ræðumenn á fundinum verða: Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Chris Pierce, forstjóri Global Governance Services Ltd. og Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar.

Með fundinum er ætlunin að minna á mikilvægi góðra stjórnarhátta innan fyrirtækja og stofnana hér á landi, en ofangreindir aðilar gáfu á síðasta ári út nýja og endurbætta útgáfu af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Eftir erindi ræðumanna verða pallborðsumræður og þar sem m.a. verður rætt með hvaða hætti hægt er að koma að úrbótum í stjórnarháttum fyrirtækja. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík, hún hefst klukkan 12 og stendur til 13:45. Verð er krónur 1.500, hádegisverður innifalinn.

Morgunverðarfundur um fjármál ríkisins - 16. júní á Grand Hótel Reykjavík

Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um fjármál ríkisins, miðvikudaginn 16. júní, á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum verður kynnt nýtt rit SA um ríkisfjármálin. Gestur fundarins verður  David Crouchan frá samtökum atvinnurekenda á Írlandi og mun hann m.a. segja frá aðgerðum Íra í kreppunni. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar en fundurinn hefst 8:30 og verður lokið kl. 10:30. 

   Lífeyrismál

Aðilar vinnumarkaðarins munu verja lífeyrissjóðina
Uppbygging lífeyrissjóða er eitt af því sem best hefur tekist hjá Íslendingum undanfarin ár og áratugi. Í sjóðunum eru nú samtals rúmlega 1.800 milljarðar króna og fáar þjóðir hafa byggt upp sambærilegan sparnað til þess að standa undir lífeyrisgreiðslum í framtíðinni. Einungis Holland og Sviss eru sambærileg við Ísland en þessi þrjú ríki eiga sparnað í lífeyrissjóðum sem nemur 120-130% af landsframleiðslu en önnur ríki standa þeim langt að baki.

Umhugsunarvert er að bera saman stöðu Íslands og Grikklands. Grikkland engist í djúpri kreppu meðal annars vegna ákvarðana skammsýnna og tækifærissinnaðra stjórnmálamanna fyrr á árum sem lögleiddu lífeyriskerfi á kostnað skattgreiðenda sem engin leið er að standa undir, en Grikkir eiga enga lífeyrissjóði. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í grein um lífeyrissjóðina.

Sjá nánar »

Yfir 500 milljarða reikningur á skattgreiðendur vegna lífeyrissjóða hins opinbera
Vilmundur JósefssonViðskiptablaðið birti 29. apríl ítarlega úttekt á ávöxtun lífeyrissjóða á síðasta ári. Þar er m.a. vísað til orða formanns SA, Vilmundar Jósefssonar, um málefni lífeyrissjóðanna í ræðu á aðalfundi SA 2010. Þar segir Vilmundur m.a. að það sé mikið umhugsunarefni að opinberir starfsmenn þurfi ekki að glíma við skerðingu á sínum lífeyri í því árferði sem nú ríkir. Vilmundur bendir á að hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna hafi hrúgast upp skuldbindingar langt umfram inngreiðslur. Sjóðir hins opinbera hafi þannig verið með yfir 500 milljarða króna tryggingafræðilegan halla í árslok 2008 sem sé ávísun á miklar skattahækkanir í framtíðinni.

Sjá nánar »

Umsögn til Alþingis
Á vef SA má nálgast umsögn til Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum. Þar er m.a. lagt til að stjórnir lífeyrissjóða verði kosnar í leynilegri kosningu á ársfundum þeirra. Þessi háttur við val stjórnarmanna komi í stað þess fyrirkomulags sem algengast er og byggir á kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar, að hvor samningsaðili tilnefni jafn marga stjórnarmenn. SA leggjast gegn samþykkt frumvarpsins.

Sjá nánar á vef SA

Athugasemdir vegna skrifa Jóhanns Páls Símonarsonar um Gildi
„Jóhann Páll Símonarson skrifaði opið bréf til mín í Morgunblaðinu fimmtudaginn 6. maí sl. og leggur fram ýmsar spurningar um málefni lífeyrissjóðsins Gildis. Fyrir þá sem ekki vita hefur Jóhann Páll reynt að gera sig gildandi á ársfundum Gildis undanfarin ár og skeytt takmarkað um samþykktir sjóðsins eða almenn fundarsköp en reitt til höggs gagnvart stjórn og starfsmönnum óháð því hvort vel hefur gengið eða miður. Málefnatilbúnaðurinn hefur verið fátæklegur en þó sjaldnast jafn rýr og nú." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar Gildis og framkvæmdastjóri SA m.a. í grein sem birtist í Morgunblaðinu. Greinina má lesa á vef SA.

Sjá nánar »

   Vinnumarkaðsmál

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins þjónar vinnumarkaðnum öllum
Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) var samþykkt að BSBR, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytisins verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Þá undirrituðu fjármálaráðherra fh. ríkisins og fulltrúar BSRB, samtaka sveitarfélaga, ASÍ og SA nýjar samþykktir fyrir Fræðslumiðstöðina. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er ætlað mikilvægt hlutverk í framhaldsfræðslu.

Sjá nánar »

   Aðildarfélög SA

Upptökur frá SFF-deginum komnar á vefinn
SFF dagur Samtaka fjármálafyrirtækja var haldinn 12. maí sl. undir yfirskriftinni Með traust að leiðarljósi. Ræðumenn á ráðstefnunni voru Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra, Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar, Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Lilja Ólafsdóttir formaður stjórnar FME, og Birna Einarsdóttir, formaður SFF. Ráðstefnustjóri var Margrét Kristmannsdóttir formaður SVÞ. Upptökur af erindum ræðumanna má nú nálgast á vef SFF.

Sjá nánar »

   Aðalfundur SA 2010

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2010 fór fram á Hótel Nordica 21. apríl sl. á síðasta degi vetrar. Hátt í 400 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til opinnar dagskrár fundarins sem fór fram undir yfirskriftinni ÍSLAND AF STAÐ! Á vef SA má nú nálgast allt efni aðalfundarins, nýja ársskýrslu SA, ræður frummælenda, upplýsingar um kjör formanns SA og varaformanns, ásamt upplýsingum um kjör nýrrar stjórnar og framkvæmdastjórnar SA fyrir starfsárið 2010-2011.
Frá aðalfund SA 2

Sjá nánar »

   Útgáfa SA

Ársskýrsla SA 2009-2010
Ársskýrsla SA 2009-2010Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2009-2010 kom út á aðalfundi SA 21. apríl. Þar er að finna greinagott yfirlit yfir starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Í skýrslunni er einnig ítarleg umfjöllun um þróun efnahags- og atvinnumála undanfarið ár auk yfirlits um kjaramál og samninga. Rafrænt eintak skýrslunnar má nálgast á vef SA.
 

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440