Smelltu hér til að áframsenda til vinar.

Rannis

Úthlutun úr Tækniþróunarsjóði

Hanna Dóra, Hallgrímur og Katrín Júl.Rannís og iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna 10. júní sl. í húsakynnum Marel. Að þessu sinni veitir sjóðurinn um 400 milljónum króna til nýsköpunar og þróunar í fyrirtækjum sem verður að teljast mikilvæg innspýting beint inn í atvinnulífið í landinu. Hér er listi yfir úthlutun nýrra styrkja, en um helmingur þeirra eru framhaldsstyrkir. Mikill hugur er í nýskipaðri stjórn Tækniþróunarsjóðs sem stefnir að því að stækka sjóðinn enn frekar. Athöfnin hófst með ávarpi iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur og síðan flutti Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP og formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs tölu. Kristinn Andersen flutti ávarp fyrir hönd Marel og sprotafyrirtæki sögðu frá verkefnum sínum. Á myndinni má sjá Hönnu Dóru Másdóttur frá iðnaðarráðuneytinu, Hallgrím Jónasson forstöðumann Rannís og Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við þetta tækifæri.

Ritrýndar birtingar og áhrif þeirra

Rannís hefur gefið út skýrsluna Ritrýndar birtingar og áhrif þeirra - samantekt um árangur Íslands en í henni er stuðst við gögn og skýrslur norræns starfshóps um greiningu á eðli og fjölda ritrýndra birtinga á Norðurlöndum sem settur var saman fyrir tilstilli NordForsk í tengslum við NORIA-net Bibliometrics verkefnið.

Vísindavaka 24. september 2010

Visindavaka

Vísindavaka 2010 verður föstudaginn 24. september nk. og hefur verið opnað á skráningu sýningaraðila. Vegna sívaxandi vinsælda Vísindavökunnar er vissara að tryggja sér sýningarpláss í tæka tíð. Í ár verður lögð sérstök áhersla á lifandi kynningar og almenningi boðið til skemmtilegrar samræðu við vísinda- og fræðimenn. Upplýsingar um Vísindavökuna hér.

Færeyingar orðnir aðilar að 7. rannsóknaáætluninni

Færeyjar hafa bæst í hóp aðildarþjóða 7. rannsóknaáætlunarinnar og hafa undirritað samkomulag þess efnis við framkvæmdastjórn ESB. Þar með hafa Færeyingar öðlast sömu réttindi og Íslendingar í áætluninni, en þrátt fyrir smæð vísindasamfélagsins hafa þeir ýmislegt fram að færa, ekki síður en við Íslendingar. Rannís býður Færeyinga velkomna í 7. RÁ. Hér er tengill í heimasíðu færeyska Rannsóknaráðsins og hér er tengill í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnarinnar.

Unnur Anna Valdimarsdóttir hlaut Hvatningarverðlaun 2010

Hvatningarverðlaun afhendingUnnur Anna Valdimardóttir dósent við læknadeild og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands hlaut Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs fyrir árið 2010, en verðlaunin voru afhent á Rannsóknaþingi Rannís 27. maí. Á myndinni má sjá móður Unnar Önnu, Guðrúnu Jónsdóttur, taka við viðurkenningunni fyrir hönd dóttur sinnar sem dvelur við rannsóknir í Bandaríkjunum um þessar mundir, úr hendi Jóhönnu Sigurðardóttur sem jafnframt er formaður Vísinda- og tækniráðs. Nánar hér.

Tækifæri til að komast inn í COST verkefni

Þrjátíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt og nú er tækifæri til að óska eftir að komast inn í verkefnin. Upplýsingar um ferlið hér. Tilgangur COST er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og er aðkoma að þeim einföld og opin fyrsta ár verkefnsins. HÉR er að finna upplýsingar um verkefni sem hafa nýlega verið samþykkt.

Úthlutað úr Tækjasjóði

Stjórn Tækjasjóðs hefur lokið við úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2010 en um 140 milljónum króna var úthlutað. Alls bárust 75 umsóknir og voru 24 þeirra styrktar eða 32,0% umsókna. Sótt var um tæplega 470 milljónir króna en um 140 milljónum króna veitt eða 29,7% umbeðinnar upphæðar. Nánar um sjóðinn hér.

Frábær árangur í lífvísindum

Tveir framhaldsnemar í lífvísindum við HÍ, Marteinn Þór Snæbjörnsson og Sara Sigurbjörnsdóttir náðu þeim einstæða árangri að komast inn í eitt besta framhaldsnám í sameindalíffræði í Evrópu við EMBL í Heidelberg. EMBL (European Molecular Biology Laboratory) er öflugasta rannsóknastofnun Evrópu á sviði sameindalíffræði og skyldra greina en Ísland tekur þátt í rekstri hennar og hefur Rannís umsjón með þátttöku Íslands.  Við EMBL munu þau Marteinn og Sara leggja stund á rannsóknir á þroskunar- og sameindalíffræði við bestu mögulegar aðstæður. Árlega sækja um 1000 einstaklingar um inngöngu í doktorsnámið hjá EMBL en aðeins um 50 komast inn á hverju ári eða 5%. Árangurinn endurspeglar sterka stöðu lífvísinda hér á landi. Nánar HÉR.

Sumarlokun Rannís

Skrifstofa Rannís verður lokuð vegna sumarleyfa frá 12. júlí til 6. ágúst. Opnum aftur 9. ágúst.

Námskeið fyrir ráðgjafa í 7.RÁ 18. ágúst nk.

Þeir sem veita ráðgjöf og aðstoð við umsóknarskrif í 7.RÁ ættu ekki að missa af þessu námskeiði. Leiðbeinandi Sean McCarthy. Nánar hér.

Sumarstarfsfólk á skrifstofu Rannís

Líf og fjör er á skrifstofu Rannís þar sem fimm sumarstarfsmenn, sem munu annast afmörkuð verkefni, hafa bæst í hóp starfsfólks. Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir mun annast skráningu upplýsinga, Linda Georgsdóttir og Bergur Dan Gunnarsson munu vinna við gagnavinnslu sjóðakerfisins og Bjargey Anna Guðbrandsdóttir og Ásdís Eir Símonardóttir munu annast ákveðin verkefni á greiningarsviði. Rannís býður sumarstarfsfólk sitt velkomið til starfa!

Sex hljóta styrk út Launasjóði fræðiritahöfunda

Lokið er úthlutun úr Launasjóði fræðiritahöfunda fyrir styrkárið 2010. Alls voru veittir 6 styrkir en meginhlutverk sjóðsins er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Nánar um sjóðinn hér.

Úthlutun úr Rannsóknasjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar

Tíu styrkir hafa verið veittir úr Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar fyrir styrkárið 2010. Alls voru veittir 10 styrkir en markmið sjóðsins er að að efla rannsóknir á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni. Nánar um sjóðinn hér.

Þrír hljóta rannsóknastyrki Bjarna Benediktssonar

Úthlutun úr sjóðnum fór fram í maí. Kristín Benediktsdóttir doktorsnemi við lagadeild Háskóla Íslands hlaut 1 m.kr. til rannsóknar á réttarstöðu aldraðra, Þór Whitehead sagnfræðingur 500 þús. styrk til rannsóknar á Íslandi í síðari heimsstyrjöldinni og Sigríður Matthiasdóttir Hugvísindastofnun Háskóla Íslands hlaut 500 þús. til að rannsaka hugmyndir og viðhorf í stjórnarstefnu Viðreisnarstjórnarinnar á sviði velferðar- og menntamála. Nánar um sjóðinn hér.

Spacer

Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • rannis@rannis.is

 

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440