
Einn meginþátturinn í endurreisn íslensks efnahags er að snúa hallarekstri ríkissjóðs við þannig að afgangur verði á rekstrinum. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á morgunverðarfundi SA í morgun þar sem nýtt rit SA um nauðsynlegar umbætur í fjármálum hins opinbera var kynnt.
Vilhjálmur sagði fjármál hins opinbera hafa margvísleg áhrif á atvinnulífið og móta starfsskilyrði og samkeppnisstöðu þess. Opinberu fjármálin hafi t.a.m. áhrif á verðbólgu og vexti og þar með á hagvöxt, sköpun starfa og kaupmátt launa. Traust opinber fjármál séu því ein grundvallarforsenda þess að unnt verði að sækja fram til bættra lífskjara.
Rafrænt eintak ritsins má nálgast á vef SA en þar er að finna beinar tillögur að því sem betur má fara í fjármálum hins opinbera. Fjallað er um fjárlög ríkisins og umgjörð þeirra og í einstökum köflum er m.a. fjallað um heilbrigðis- mennta- og velferðarmál auk þess sem fjallað er um málefni sveitarfélaga.
Sjá nánar »