Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Komum atvinnulífinu af stað
Svipleg örlög stöðugleikasáttmálans breyta því ekki að gera verður nýja atrennu að því að ná atvinnulífinu á alvöru skrið, skapa störf og eyða atvinnuleysinu.Ríkisstjórnin kemur óhjákvæmilega að því en í samskiptum við ríkisstjórn og önnur stjórnvöld þarf í ljósi reynslunnar að ganga mun tryggilegar frá málum en áður var nauðsynlegt. Nú þarf að miða við að lagabreytingar sem ríkisstjórn vill beita sér fyrir í samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins verði samþykktar áður en gengið er frá kjarasamningum og sambærilegt gildi um stjórnvaldsákvarðanir.

Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m.a. um komandi kjaraviðræður og áherslur SA en flestir samningar á vinnumarkaðinum renna út í lok nóvember.

Sjá nánar »

   Fréttir

Verulegt svigrúm til að bæta rekstur sveitarfélaga: 20 milljarðar á ári
PeningarSveitarfélög verða að setja sér haldgóðar fjármálareglur sem tryggja eftir föngum hallalausan rekstur þeirra. Fjárhagur flestra sveitarfélaga þolir ekki lausatök og mikilvægt er að sveitarfélög sæki leiðir til hagræðingar í reynslu hjá hverju öðru. Breytileiki í kostnaði sveitarfélaga á hvern íbúa er mikill sem sýnir að verulegt svigrúm er fyrir bættan rekstrarárangur sem nauðsynlegt er að nýta. Í tillögum Samtaka atvinnulífsins að nauðsynlegum umbótum í fjármálum hins opinbera kemur fram að hægt sé að hagræða á vettvangi sveitarfélaganna fyrir um 20 milljarða króna á ári.

Ríki og sveitarfélög hafa náð samkomulagi um flutning málefna fatlaðra yfir til sveitarfélaga um næstu áramót þó svo að staða og stærð sveitarfélaga á Íslandi gefi ekki tilefni til þess að flytja veruleg og viðkvæm verkefnasvið til þeirra frá ríkinu.

Sjá nánar »

Umbætur nauðsynlegar í menntakerfinu
Lækka þarf kostnað á nemanda í íslensku skólakerfi með því að gera skipulag grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla markvissara. Þrátt fyrir að útgjöld til menntamála á Íslandi séu hærri en í öðrum OECD ríkjum sem hlutfall af landsframleiðslu þá skilar það sér ekki sem skyldi í árangri í menntun. Menntunarstig landsmanna 25-64 ára er töluvert undir meðaltali OECD ríkja.

Sjá nánar »

Ljósvakamiðlar fái jöfn tækifæri til að sinna hlutverki RÚV
www.ruv.isSkatttekjur Ríkisútvarpsins eru vel á fjórða milljarð króna á ári. Að mati Samtaka atvinnulífsins er óhjákvæmilegt að þessi starfsemi verði fyrir miklum niðurskurði á næstunni. Mikil framþróun hefur átt sér stað í fjölmiðlun á síðustu árum og því eðlilegt að ljósvakamiðlar fái allir jöfn færi á að sinna því hlutverki sem Ríkisútvarpið gegnir nú samkvæmt útvarpslögum: Að gegna öryggishlutverki á hættutímum, flytja fréttir og skoðanaskipti, standa vörð um íslenska tungu, menningararfleifð og sögu þjóðarinnar, flytja lista- og menningarefni, fræða hlustendur, flytja skemmtiefni, sérstaklega fyrir börn og senda dagskrána út til landsins alls.

Sjá nánar »

   Allir vinna

Hvatningarátak um atvinnuskapandi framkvæmdir
Sameiginlegt hvatningarátak stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er hafið undir yfirskriftinni Allir vinna. Átakin eru ætlað að efla innlenda atvinnustarfsemi, framleiðslu, verslun og þjónustu. Landsmenn eru hvattir  til að nýta sér hagstæðar aðstæður til að ráðast í framkvæmdir og leggja þar með sitt af mörkum til að skapa atvinnu.

Allir vinnaEndurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði eða sumarhús hefur verið hækkuð úr 60% í 100%. Þá geta einstaklingar sem fjárfesta í viðhaldi á eigin húsnæði fengið allt að 200 þúsund króna skattafrádrátt en hjón eða samskattaðir allt að 300 þúsund króna skattafrádrátt.

Sjá nánar »

   Umhverfismál

Íslenska ákvæðið skilar miklum árangri
Nýlega sendi Umhverfisstofnun skýrslu til skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna um útstreymi gróðurhúsalofttegunda hér á landi árið 2008. Þetta er fyrsta árið af fimm sem fellur innan skuldbindingartímabils Kyoto-bókunarinnar. Eins og kemur fram í tilkynningu Umhverfisstofnunar er búist við að Ísland uppfylli þær skuldbindingar sem bókunin kveður á um.

Sjá nánar »

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda við fiskveiðar dregst enn saman
Á árunum 1990 til 2008 dró úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda við fiskveiðar hér á landi um 21%. Útstreymið varð mest árið 1996 um 800 þúsund tonn en var aðeins 517 þúsund tonn árið 2008 og hafði þannig minnkað um þriðjung frá því mest var. Enn meira hefur dregið úr útstreymi frá fiskimjölsverksmiðjum. Ekki er vafi á að aflamarkskerfið á sinn þátt í þessari þróun en það hefur ýtt undir fækkun fiskiskipa, hagræðingu og tæknivæðingu í greininni. Hvati til olíusparnaðar er einnig mikill.

Sjá nánar »

   Málefnastarf SA

Fundur skattahóps SA 13. júlí
Samtök atvinnulífsins hafa boðað skattahóp samtakanna til fundar þann 13. júlí næstkomandi. Til fundarins eru m.a. boðaðir skattasérfræðingar á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Skattahópi SA er ætlað að leggja mat á hvar brýnast er að breyta núverandi skattalöggjöf svo unnt verði að byggja upp sterkt, samkeppnishæft og heilbrigt atvinnulíf. Jafnframt er hópnum ætlað að útfæra og rökstyðja þær breytingar. Stefnt er að því að skattahópurinn ljúki þessari vinnu í byrjun september og munu Samtök atvinnulífsins í framhaldi af því kynna niðurstöður hópsins fyrir íslenskum stjórnvöldum.   

   Skrifstofa SA

Sumarlokun skrifstofu SA
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Samtaka atvinnulífsins lokuð dagana 19. júlí til 2. ágúst (að báðum meðtöldum), en svarað verður í símann og brugðist við áríðandi erindum. Skrifstofan verður opnuð á ný þriðjudaginn 3. ágúst.

   Ímynd og orðspor

Íslandsstofa stofnuð
Stofnfundur Íslandsstofu var haldinn þriðjudaginn 29. júní. Með tilkomu hennar verður öll kynning á viðskiptalegum hagsmunum Íslands komin undir einn hatt, en í lögum um Íslandsstofu segir að markmið þeirra sé að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, sagði í ávarpi að stofnun Íslandsstofu væri sérstakt gleðiefni. Með samstarfi atvinnulífs, utanríkisþjónustunnar, fyrirtækja og stjórnvalda hafi verið skapaður grunnur til að standa vel að þessu mikla og mikilvæga verkefni.

Sjá nánar »

   Starfsumhverfi atvinnulífsins

SA krefjast hraðrar úrlausnar mála er tengjast gengistryggðum lánum
Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við dómsmála- og mannréttindaráðherra að beita sér fyrir því að mál vegna gengistryggðra lána fái flýtimeðferð í dómskerfinu. Með dómunum hefur skapast gríðarleg réttaróvissa ásamt óvissu um afleiðingarnar m.a. um hversu víðtæk áhrifin eru, hvernig fara eigi með það sem greitt hefur verið og hvernig skuli fara með skuldbindingar sem eru að fullu greiddar. Skiptar skoðanir eru einnig um hvaða vexti skuli miða við á umræddum skuldbindingum.

Sjá nánar »

Gætt verði meðalhófs við beitingu kyrrsetningarúrræða
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki venju að stjórnarmenn hlutafélaga fari nákvæmlega yfir virðisaukaskattskil félaganna. Hann telur að það geti haft letjandi áhrif á vilja fólks til að gegna stjórnarsetu ef yfirvöld gæti ekki meðalhófs við beitingu kyrrsetningarúrræða gagnvart stjórnarmönnum hlutafélaga vegna skattskila.

Sjá nánar »

   Lífeyrismál

Hækkun lífeyrisaldurs verði skoðuð
Hlutfall fólks á vinnualdri og eldra fólksSamtök atvinnulífsins telja að skoða beri hækkun lífeyrisaldurs og tengingu hans við lengri meðalævi þjóðarinnar. Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar á aldurssamsetningu Íslendinga á næstu áratugum þar sem eldra fólki mun fjölga hlutfallslega og fólki á vinnualdri mun jafnframt fækka hlutfallslega. SA telja því að það hljóti að koma til alvarlegrar skoðunar að hækka almennan aldur til töku lífeyris á næstunni úr 67 árum í 68 ár hjá almennu lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun og hækka jafnframt þennan aldur hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna úr 65 í 68 ár.

Sjá nánar »

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440