Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Samstaða um atvinnusókn
Skynsamlegir kjarasamningar eru ein af lykilforsendum fyrir hækkun á gengi íslensku krónunnar á næstu árum og þar með lágri verðbólgu og auknum kaupmætti. Kaupmáttur á næstu árum vex ekki aðeins með lágri verðbólgu heldur ekki síður vegna þess að ný störf skapast, meiri atvinna verður í boði og atvinnuleysi dregst saman. Nauðsynlegt er að ríkisstjórn og Alþingi komi að nokkrum mikilvægum málum til þess að ná fjárfestingum á skrið og styðji við stefnumörkun um framleiðsludrifinn hagvöxt sem leiðina út úr kreppunni.

Í leiðara fréttabréfsins fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni.  „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."

Sjá nánar »

   Fréttir

Meginmarkmið að þjóðin nái fyrri styrk
Samtök atvinnulífsins leggja höfuðáherslu á að skapa ný störf til skemmri og lengri tíma, að atvinna verði í boði fyrir alla sem vilja vinna og atvinnuleysi minnki hratt svo þjóðin nái fyrri styrk.Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót.

Í vikunni hafa fulltrúar SA átt fundi með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundunum lögðu SA fram meginmarkmið samtakanna vegna samninganna og yfirlit um þau mál sem Samtök atvinnulífsins vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til samhliða umfjöllunar og afgreiðslu. Yfirlit um afstöðu SA og kjarsamningana hefur nú verið birt á vef samtakanna.

Atvinnutryggingargjald verði lækkað
Samtök atvinnulífsins hafa sent Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að atvinnutryggingargjald verði lækkað um tæpt 1% í samræmi við lög þar sem gjaldið er nú of hátt. Tekjur Atvinnuleysistryggingarsjóðs af gjaldinu á þessu ári eru áætlaðar um sjö og hálfum milljarði króna hærri en útgjöld sjóðsins vegna atvinnuleysis. Lög um tryggingagjaldið kveða á um að við þær aðstæður beri fjármálaráðherra að flytja frumvarp um lækkun gjaldsins en það hefur ráðherrann ekki gert. Lækkun gjaldsins er sérstaklega mikilvægt hagsmunamál lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Sjá nánar »

Opinn fundur um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn 24. janúar
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn í Reykjanesbæ, mánudaginn 24. janúar næstkomandi. Fundurinn fer fram í Stapa kl. 17-19. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum.

Þá munu Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls og Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, veita stutt yfirlit um verklegar framkvæmdir sem tengjast fyrirtækjunum.

Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG!

   Vinnumarkaðurinn

Hóflegar launabreytingar í OECD-ríkjunum
Sú staðreynd er yfirleitt sniðgengin í umræðu um kjaramál að launabreytingar hafa verið margfalt meiri hér á landi en í nágranna- og viðskiptaríkjunum undanfarin ár og áratugi og átt sinn þátt í því að verðbólga hefur verið mun meiri og vextir hærri en annars staðar tíðkast. Á árabilinu 2005-2009 hækkuðu laun á Íslandi t.a.m. um 32% á sama tíma og þau hækkuðu um 10,6% að meðaltali í OECD-ríkjunum. Aðeins í einu ríki OECD, Tyrklandi, hækkuðu laun meira á þessu tímabili.

Sjá nánar »

Yfirlit kjarasamninga á Norðurlöndum 2009-2011: Hækkunum stillt í hóf
Í nýrri samantekt Samtaka atvinnulífsins á kjarasamningum sem gerðir hafa verið nýlega  á Norðurlöndum og ná til áranna 2009-2011 kemur í ljós að hækkun launa hefur verið stillt í hóf. Árleg hækkun launakostnaðar í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð er 0,6% þar sem hún er lægst og 2,3% þar sem hún er hæst. Algengt er að samið sé til 2-3 ára.
 

   Skattamál

Gögn frá Skattadegi Deloitte 2011
Skattadagur Deloitte, haldinn í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins, fór fram á Grand Hótel Reykjavík í vikunni. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon, setti fundinn en Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, fór yfir þær verulegu skattkerfisbreytingar sem stjórnvöld hafa ráðist í og neikvæð áhrif sem af þeim hafa hlotist. Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands lögðu fram á haustdögum 2010 ítarlegt rit um skattkerfi atvinnulífsins og þær breytingar sem nauðsynlegt er að ráðast í til að endurreisn atvinnulífisins geti hafist og tekjur ríkisins aukist til að standa undir velferðarkerfinu.

Sjá nánar »

   Endurreisn atvinnulífsins

Formaður SA: Sköpum 2011
VJ skorinAtvinnuleysi er allt of mikið hér á landi og hefur nánast ekkert minnkað undanfarið ár þrátt fyrir að þúsundir manna hafi flutt úr landi og reynt fyrir sér annars staðar þar sem betra ástand ríkir á vinnumarkaði. Atvinnuleysið er skýrasta birtingarmynd úrræðaleysis stjórnvalda og fækkun starfa er afleiðing af stefnu ríkisstjórnarinnar í skattamálum, andstöðu við fjárfestingar stórar sem smáar, gjaldeyrishöftum, háu vaxtastigi, óvissu sem stjórnin hefur skapað í sjávarútvegi og almennum seinagangi við úrlausn mála. Stjórnmálamenn verða að sýna að þeir standi undir þeirri ábyrgð sem þeim er falin. Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, meðal annars í áramótagrein sem birtist í Fréttablaðinu í upphafi ársins. Greinina má lesa á vef SA.

Sjá nánar »

   Lítil og meðalstór fyrirtæki

Fyrirtækin á beinu brautina
Á fjórða hundrað stjórnenda mættu á opinn upplýsingafund um nýtt samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem skrifað var undir um miðjan desember. Um víðtækt samkomulag er að ræða sem efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands standa að.
Beina brautin 
Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að snúa sér sem fyrst til síns viðskiptabanka til að skoða hvaða möguleikar standi þeim til boða og taka ákvarðanir í framhaldinu. Margir aðilar eru tilbúnir til að veita fyrirtækjunum hlutlausa þjónustu í þeirri vinnu sem framundan er og eru upplýsingar um þá birtar á vef SA.

Sjá nánar »

   Skrifstofa SA

Sigrún Kristjánsdóttir hættir hjá SA í Brussel
Sigrún Kristjánsdóttir, lögfræðingur, hefur hætt störfum fyrir Samtök atvinnulífsins en Sigrún hefur starfað á Evrópuskrifstofu SA í Brussel og verið fastafulltrúi SA hjá BUSINESSEUROPE (Evrópusamtökum atvinnulífsins). Samtök atvinnulífsins þakka Sigrúnu vel unnin störf og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi en Sigrún hefur starfað hjá SA frá því 2006. Við starfi Sigrúnar tekur Jón Óskar Sólnes en hann hefur starfað á Evrópuskrifstofu SA frá því 2009 en Jón Óskar hefur fjölþætta reynslu af alþjóðamálum.

SA eiga aðilda að BUSINESSEUROPE en samtökin eru málsvari yfir 20 milljón fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum í 34 löndum Evrópu.

  Jón Sigurðsson & atvinnulífið

Málþing í Hofi á Akureyri 25. mars 2011
JSSamtök atvinnulífsins efna til málþings í Hofi á Akureyri um Jón Sigurðsson og sýn hans á atvinnulífið föstudaginn 25. mars. Fjórir fyrirlesarar fjalla um áhrif Jóns Sigurðssonar á atvinnulíf á Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur en SA efna til málþingsins í tilefni af því að á árinu verða 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta.

Sjá nánar í Afmælistíðindum, 1. árg. 1.tbl.

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

AÐALFUNDUR SA 2011:

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2011 verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl . Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica eftir hádegi.

Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur en SA hvetja fólk úr atvinnulífinu til að taka daginn frá - sjáumst.

Sjáumst á Nordica 7. apríl 2011

 Í umræðunni - skattamálin:

Smelltu til að sækja  
Tillögur SA og VÍ til umbóta

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440