Rannís boðar til málþings um siðareglur í íslensku vísindasamfélagi, föstudaginn 18. mars nk. kl. 14-16 á Hótel Sögu. Hver er staða þessara mála á Íslandi? Hvernig er að starfa sem vísindamaður við núverandi aðstæður? Hverju viljum við breyta í íslensku vísindasamfélagi og hvernig? Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís setur þingið og síðan taka þrír frummælendur við, en það eru Dr. Sigurður Kristinsson, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, Dr. Rannveig Traustadóttir, prófessor og forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og Dr. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Skráning á: rannis@rannis.is