Tækifærin í evrópsku vísindasamstarfi liggja víðar en margir halda og er ekki úr vegi að hvetja vísindamenn á ýmsum fræðasviðum til að mæta á kynningarfund á öryggis- og geimáætlunum 7. rá, sem haldinn verður 10. júní kl. 8:30-11:00 á Grand hótel Reykjavík, 4. hæð. Á fundinum mun fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, Angelo Marino, kynna tækifæri til samstarfs og styrkja undir tveimur undiráætlunum 7. rá, annars vegar öryggisáætluninni, sem gengur bæði út á öryggi borgaranna og tæknilausnir í öryggismálum og hins vegar geimáætluninni, en þar er lögð áhersla á að styrkja umhverfisvöktun og tengdar tæknilausnir. Að kynningu lokinni gefst áhugasömum tækifæri til að eiga fund með fulltrúa ESB til að ræða einstök verkefni og hugmyndir. Skráning á rannis@rannis.is