Samtök atvinnulífsins og
Samtök iðnaðarins efna til opins morgunverðarfundar
föstudaginn 16. september á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-10.00. Efni fundarins er staða atvinnulífsins í Evrópu og hagvaxtarhorfur ásamt mögulegum áhrifum á íslenskt efnahagslíf.
Aðalræðumaður verður Philippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE (samtaka atvinnulífsins í Evrópu) en yfirskrift erindis hans er European Business Outlook.
BUSINESSEUROPE hefur á undanförnum misserum verið öflugur talsmaður aukinna fjárfestinga í atvinnulífinu, meiri hagvaxtar, að ný störf verði sköpuð og samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja verði aukin.
Þátttakendur í umræðum að loknu erindi de Buck eru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri,
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris og stjórnarformaður Marels og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður.
Fundurinn fer fram á ensku.
Tryggðu þér sæti strax og skráðu þátttöku hér: