Smelltu hér til að áframsenda til vinar.

Rannis

Kynningarfundur um upplýsingatækniáætlanir ESB 3. nóvember

Kynning á styrkjum til rannsókna og nýsköpunar á sviði upplýsingatækni verður haldin á Grand hótel Reykjavík, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 9-11. Rannís, Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands og Enterprise Europe Network efna til fundarins þar sem kynnt verða tækifæri innan 7. rannsóknaáætlunar og innan Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar ESB. Morgunverður í boði fyrir fundargesti. Dagskrá og nánari upplýsingar hér.

Verðlaun fyrir vísindamiðlun afhent á Vísindavöku 2011

Vísindavaka 2011 Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarne

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness fékk sérstaka viðurkenningu frá Rannís fyrir öfluga vísindamiðlun á Vísindavöku Rannís 23. september sl. Þeir sem standa að Stjörnuskoðunarfélaginu og Stjörnufræðivefnum hafa verið mjög ötulir við að fræða almenning, og sérstaklega börn og ungmenni um undur alheimsins. Sverrir Guðmundsson ritari félagsins veitti viðurkenningunni viðtöku úr hendi forstöðumanns Rannís, Hallgríms Jónassonar, við opnun Vísindavöku 2011.

Gæðakerfi háskóla hleypt af stokkunum á fjölmennri ráðstefnu

Góð þátttaka var á ráðstefnu um gæðamál háskóla sem haldin var 18. október sl. Þar var kynnt ný rammaáætlun um eflingu gæða í starfi háskóla en Svandís Svavarsdóttir starfandi mennta- og menningarmálaráðherra flutti ávarp í tilefni þess að áætluninni hefur nú verið hleypt af stokkunum. Hátt á annað hundrað manns sótti ráðstefnuna en erindi fluttu Þórólfur Þórlindsson prófessor við Háskóla Íslands og Ronald Piper aðstoðarrektor St. Andrews-háskólans í Skotlandi. Ennfremur kynntu Norman Sharp, formaður Gæðaráðs háskóla, og Magnús Lyngdal Magnússon, ritari ráðsins, helstu þætti hinnar nýju rammaáætlunar. Nánar hér.

Cristin, norskt upplýsingakerfi rannsókna kynnt á Íslandi

Rannís kynnti nýverið hér á landi norskt upplýsingakerfi um rannsóknir, sem gengur undir heitinu Cristin (Current Research Information System in Norway). Tilefni kynningarinnar var að Vísinda- og tækniráð samþykkti 1. apríl 2011 að "fela Rannís að vinna áfram að áætlun um mat á gæðum og árangri rannsókna hjá háskólum og stofnunum og hvernig tengja megi fjármögnun við gæði og árangur. Tillögur verði lagðar fram á haustfundi ráðsins til umræðu." Eftir að hafa skoðað aðferðir við mat á gæðum og árangri í nokkrum nágrannalöndum hefur Rannís valið að kynna tilhögun þessara mála í Noregi en þar hefur verið komið á fót nýrri aðferð við að úthluta fjármagni eftir árangri til rannsókna í norskum háskólum og stofnunum. Hér er tengill í heimasíðu upplýsingakerfisins. Hér er tengill í fréttina á heimasíðu Rannís þar sem nálgast má nánari upplýsingar og kynningar frá heimsókn Norðmannanna.

Tölfræðikverið Rannsóknir og þróun á Íslandi 2011 komið út

Rannís hefur nú gefið út nýjustu útgáfu tölfræðikversins Rannsóknir og þróun á Íslandi 2011. Markmið útgáfunnar er að afla reglulega gagna um rannsóknir, þróun og nýsköpun og skylda þætti, sem geta gefið yfirlit yfir þróun þessara mála hér á landi og samanburð vð önnur lönd. Að þessu sinni var upplýsingum safnað hjá um 500 fyrirtækjum auk stofnana sem stunda rannsóknir og þróun. Hægt er að nálgast kverið í prentaðri útgáfu á skrifstofu Rannís, auk þess sem hún verður send út til helstu hagsmunaaðila. Rafræna útgáfu á pdf formi má nálgast hér.  Bæklingurinn er líka til á ensku, hér.

Vel heppnuð Vísindavaka

Vísindavaka 2011 Spennandi krossfiskurVísindavaka Rannís 2011 var haldin föstudaginn 23. september sl. og komu um 4700 gestir á vökuna, sem að þessu sinni var haldin í Háskólabíói í samstarfi við 100 ára afmæli Háskóla Íslands. Gestir Vísindavöku fengu tækifæri til að hitta vísindafólk úr öllum fræðigreinum frá háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum, sem sögðu frá rannsóknum sínum og viðfangsefnum auk þess sem boðið var upp á lifandi vísindamiðlun í sölum bíósins. Rannís þakkar sýnendum fyrir þeirra framlag og gestum fyrir komuna.

Nýsköpun í opinberum rekstri

Ráðstefna um nýsköpun í opinberum rekstri verður haldin 3. nóvember nk. á Grand hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni verða veitt sérstök verðlaun fyrir nýsköpun í opinberum rekstri auk þess sem vefsíðu um nýsköpun í opinberum rekstri verður hleypt af stokkunum. Gestafyrirlesari verður Edwin Lau frá OECD. Nýsköpun í opinberum rekstri felur í sér að skapa nýjar lausnir og bæta það sem er til staðar í starfsemi opinberra stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þetta á m.a. við um nýja og endurbætta þjónustu eða vöru, tækni, aðferðir, stjórnskipulag, verklag og verkferla. Nánar um verkefnið hér.

Sterk staða Íslands í rannsóknum og nýsköpun

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf í sumar út sk. Innovation Union Competitiveness Report 2011 þar sem er að finna yfirlit yfir stöðu Evrópuríkja í rannsóknum, þróun og nýsköpun. Samantekt um stöðu Íslands er að finna í sérstökum kafla um landið á bls. 107-114. Þar kemur fram að Ísland þykir standa sig einstaklega vel í rannsóknum og nýsköpun í samanburði við önnur lönd Evrópu og þegar kemur að sókn í evrópska rannsóknasjóði erum við í einu af efstu 5 sætunum. Hér er tengill þar sem nálgast má ritið á pdf formi.

Sókn í Tækniþróunarsjóð í haust

Síðari umsóknarfrestur Tækniþróunarsjóðs fyrir 2011 rann út 15. september sl. Alls barst sjóðnum 101 umsókn. 13 umsóknir bárust um brúarstyrki, 28 um frumherjastyrki og 60 um verkefnastyrki. Sótt var um tæpar 130 milljónir til frumherjastyrkja, tæpar 65 milljónir til brúarstyrkja og um 535 milljónir til verkefnastyrkja. Í heildina var því sótt um u.þ.b. 730 milljónir króna. 

Nýsköpunarþing 1. nóvember

Nýsköpunarþing Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins verður haldið 1. nóvember á Grand hótel Reykjavík kl. 8.30-10.30. Húsið opnar 8.15 með morgunverði. Á þinginu verða Nýsköpunarverðlaun Íslands veitt. Skráning á www.nmi.is eða í síma 522 9000. Dagskrá hér.

Umsóknarfrestur í markáætlun

Þann 1. nóvember nk. er umsóknarfrestur í markáætlun um klasasamstarf. Verkefni skulu vera á menntasviði, heilbrigðissviði eða umhverfis- og orkusviði. Skilyrði er að verkefnin skili sparnaði í opinberum rekstri og séu í samstarfi við opinberan kaupanda sem greiðir hluta þróunarkostnaðar. Hér er tengill í nánari upplýsingar á heimasíðu Rannís.

Horizon 2020 í þróun

Framkvæmdastjórn ESB hefur sett upp vefsíðu tileinkaða skipulagi Horizon 2020, sem er heitið á 8. rammaáætlun ESB, sem taka mun við af 7. rá. í ársbyrjun 2014.

Innovation Union átakið eins árs

Ár er liðið frá því Márie Geoghegan-Quinn, yfirmaður rannsóknamála hjá Framkvæmdastjórn ESB, hleypti af stokkunum Innovation Union átakinu. Af því tilefni verður haldin ráðstefna í Brussel, 5.-6. desember nk. til að skoða stöðuna og kynna stefnu til framtíðar. Nánar um átakið hér: Innovation Union og um Innovation Union Convention ráðstefnuna.

Norrænir styrkir á sviði hug- og félagsvísinda

Um miðjan nóvember mun NOS-HS auglýsa eftir umsóknum um styrki á sviði hug- og félagsvísinda, NORDCORP. Hámarksfjárhæð hvers styrks er € 500.000. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012. Um er að ræða samstarfsverkefni með þátttöku háskóla frá minnst þremur Norðurlandanna. Hér er tengill í upplýsingar á heimasíðu NOS-HS, og upplýsingar munu birtast á heimasíðu Rannís þegar nær dregur.

Ný útgáfa OECD

OECD gaf nýlega út Science, Technology and Innovation Scoreboard 2011, sem kemur út annað hvert ár. Tengill í útgáfuna á heimasíðu OECD hér.

Nýtt rit um háskóla

Eurydice, upplýsinganet um menntakerfi Evrópu, hefur gefið út ritið Modernisation of Higher Education in Europe: Funding and the Social Dimension. Ritið er gefið út í tilefni af nýjum tillögum framkvæmdastjórnarinnar um háskóla sem kynntar voru 20. september. Nánar hér.

Spacer

Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • rannis@rannis.is

 

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440