Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Af dyggðum og löstum stjórnenda og stjórnmálamanna
Fjármálakreppan og skuldakreppan sem leikur nú ríki Evrópu grátt eiga eftir að hafa áhrif á næstu árum og fyrir ýmsar þjóðir getur tekið mörg ár að vinna sig út úr vandanum. Fjármálakerfi heimsins á eftir að aðlagast þeirri staðreynd að ríkisskuldabréf eru ekki lengur áhættulaus fjárfesting. Jafnvel bandarísk ríkisskuldabréf geta lækkað í mati sem fyrir nokkrum árum hefði þótt óhugsandi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðaranum. Þar fjallar hann m.a. um skilin milli heilbrigðs metnaðar í atvinnulífinu og græðgi ásamt því að rýna í dyggðir og lesti stjórnmálamanna. Hann segir að nú refsi markaðirnir þeim ríkjum þar sem stjórnmálamenn hafi farið offari í ábyrgðarleysi og skuldasöfnun.

Vilhjálmur segir að ef atvinnulífið fái að blómstra komist Ísland út úr kreppunni. „Mikill heilbrigður metnaður er til staðar í atvinnulífinu og í langflestum fyrirtækjum landsins er fólk sem hefur til margra ára gengið til starfa sinna með aga og heiðarleika í fyrirrúmi. Það sem vantar á er að stjórnmálamennirnir leyfi atvinnulífinu að nýta tækifærin."

Sjá nánar »

   Fréttir

Hagvöxtur í boði makrílsins
Hagvöxtur var 3,7% á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 7. desember. Þessar tölur birtust nokkrum dögum eftir að Hagstofan kynnti áætlun um 2,4% hagvöxt á árinu öllu, sem var 24. nóvember. Ætla mætti því að þessar nýju ársfjórðungstölur hefðu legið fyrir þegar áætlunin var birt og þar af leiðandi felist engar viðbótar upplýsingar í þessum nýjustu tölum. Þær hafa þó orðið einhverjum tilefni til þeirrar túlkunar um að verulegur viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Það er því miður ekki rétt. Hagvöxtur ársins skýrist af því að einkaneysla eykst að stórum hluta af tímabundnum ástæðum og sérstakur búhnykkur vegna makrílveiða vegur þungt í aukningu útflutnings.

Sjá nánar »

Ótraustur grunnur tekjuspár fjárlaga
AlþingiAlþingi hefur afgreitt fjárlög ríkisins fyrir árið 2012. Halli ríkissjóðs eykst um 3 milljarða króna frá fjárlagafrumvarpi og er áætlaður 21 milljarður. Rökstuddar ábendingar hafa komið fram um vantalin gjöld og ofáætlaðar tekjur þannig að hallinn á árinu 2012 gæti orðið meiri þegar upp er staðið. Fjárlögin einkennast af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að  leggja á nýja skatta og hækka álögur á fyrirtæki og heimili í stað þess að stuðla að stækkun skattstofna sem skapa myndu auknar tekjur fyrir ríkissjóð.

Sjá nánar »

Kjarasamningar í Finnlandi til tveggja ára
Heildarsamtökin á finnska vinnumarkaðnum gerðu nýlega rammasamning sem gildir næstu tvö árin og tekur hann til 94% launamanna í landinu. Aðilar að samningnum eru Samtök atvinnulífsins í Finnlandi, samtök vinnuveitenda hjá ríki og sveitarfélögunum annars vegar og tvenn heildarsamtök launafólks hins vegar. Samkvæmt samningnum má launakostnaður einstakra kjarasamninga milli vinnuveitenda og stéttarfélaga ekki hækka meira en 4,3% á næstu 25 mánuðum.

Markmið samningsins er að tryggja samkeppnishæfni Finnlands, hagvöxt, fjárfestingar, atvinnustig og kaupmátt á óvissutímum í heimsbúskapnum. Aðgerðir stjórnvalda í tengslum við samninginn snúa að bættri samkeppnishæfni og innlendri eftirspurn. Samningnum fylgir nokkur skattalækkun á launatengdum gjöldum fyrirtækja og lækkun á orkusköttum iðnaðarins.

Sjá nánar »

   Samfélagsábyrgð fyrirtækja

Helle Johansen: Tími kominn til að horfa fram á veginn
HJ AV fr„Rúmlega þrjú ár eru nú liðin frá því Ísland lenti í hringiðu hinnar alþjóðlegu fjármálakrísu í október 2008. Síðan hafa mörg fyrirtæki gengið í gegnum endurskipulagningu á rekstri sínum og þurft að segja upp starfsfólki. Nú er hins vegar tími til kominn að horfa fram á veginn og hefja endurreisn með því að byggja upp traust á ný. Global Compact (sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð) getur hjálpað fyrirtækjum á þeirri vegferð." Þetta segir Helle Johansen, forstöðumaður hjá UNDP í Kaupmannahöfn, í grein á vef SA.

Samtök atvinnulífsins eru tengiliður við Global Compact á Íslandi.

Sjá nánar »

   Aðildarfélög SA

Meistarafélag húsasmiða gengur til liðs við SI og SA
Í desember var undirritaður samningur um aðild Meistarafélags húsasmiða að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Grímur Sæmundsen, varaformaður SA og Baldur Þór Baldvinsson, formaður MH skrifuðu undir samninginn.

Sjá nánar »

SART og SI sameinast
Í nóvember var staðfestur samningur um sameiningu SART, Samtaka rafverktaka og SI, Samtaka iðnaðarins. SART var áður eitt átta aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins en við sameininguna fækkar þeim í sjö.

Sjá nánar »

   Rjúfum kyrrstöðuna - fundaröð SA

Lífleg umræða um atvinnumálin á opnum fundum SA
Samtök atvinnulífsins efndu til opinna funda um stöðu atvinnulífsins og horfur í efnahagsmálum á Akureyri, Húsavík og Reyðarfirði undir lok nóvember. Um 130 manns sóttu fundina en lífleg umræða fór fram meðal fundargesta um þau tækifæri sem við blasa í atvinnulífinu og verður að nýta til þess að þjóðin komist út úr kreppunni. Til dæmis uppbyggingu fjölbreyttra iðnfyrirtækja og hvers kyns þjónustu, auk mikilvægis þess að skapa skilyrði til aukinna fjárfestinga í sjávarútvegi sem skipta landsbyggðina miklu máli.

Sjá nánar »

   Starfsumhverfi atvinnulífsins

Formaður SA: Samningsrof ríkisstjórnarinnar
vjh„Fjármálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um að leggja á kolefnisgjald á rafskaut í orkufrekum iðnaði frá ársbyrjun 2013. Ráðherra gengur þarna gegn samkomulagi sem gert var við Samtök atvinnulífsins og stóriðjufyrirtækin í desember 2009. Þar féllust Alcoa á Reyðarfirði, Alcan í Straumsvík, Elkem og Norðurál á að greiða fyrirfram tekjuskatta á árunum 2010-12 til að létta undir með rekstri ríkissjóðs. Þess í stað féll ríkið frá álagningu kolefnisgjalds á rafskaut. Markmið samkomulagsins var að þegar viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir tæki gildi 2013 yrðu starfsskilyrði fyrirtækjanna almennt ekki verri en í Evrópu."

Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í grein í Fréttablaðinu 23. nóvember 2011. Fjármálaráðherra dró áform sín síðar til baka eins og lesa má hér að neðan. 

Sjá nánar »

   Skattamál

Fjármálaráðherrra fellur frá breikkun gjaldstofns kolefnisgjalds
HnötturSamtök atvinnulífsins og fulltrúar helstu fyrirtækja sem ætlað var að greiða kolefnisgjald af föstu kolefni áttu þann 28. nóvember fund með fjármálaráðherra og fulltrúum iðnaðarráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins. Fjármálaráðherra lýsti yfir því að hann myndi leggja til hliðar áform um breikkun stofns kolefnisgjalds sem finna má í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Hann ítrekaði einnig fyrirheit um að tryggja samkeppnisstöðu fyrirtækja sem reka starfsemi sína hér á landi gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. Einnig leggja stjórnvöld áherslu á að tryggja að forsendur þeirra fjárfestingaverkefna sem unnið hefur verið að raskist ekki.

Á fundinum var ákveðið að aðilar myndu í framhaldinu eiga samráð um innleiðingu evrópska viðskiptakerfisins með losunarheimildir (ETS) og önnur skattamál þeim tengd.

Sjá nánar »

Auðlegðarskattur skaðlegur
SJSSamtök atvinnulífsins lýsa miklum vonbrigðum með áform ríkisstjórnarinnar um að framlengja gildistíma auðlegðarskatts til ársins 2015. Auðlegðarskatturinn, sem tekinn var upp fyrir tveimur árum, er almennt talinn óréttlátur en fæst nálæg lönd leggja eignarskatta á þegna sína. Enn á ný er hert á skattlagningunni og lagt til viðbótarskattþrep, þ.e. 2% skatt á hreina eign yfir 150 milljónum króna hjá einstaklingi og 200 milljónum króna hjá hjónum.

Sjá nánar »

   Vinnumarkaðurinn

Desemberuppbót 2011 greiðist eigi síðar en 15. desember
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 48.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 55.400. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2011, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall. Auk þess greiðist sérstakt álag á desemberuppbót, kr. 15.000, að þessu sinni vegna ákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011.

Sjá nánar »

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

Nýlegt rit SA:

Smelltu til að sækja!

Smelltu til að sækja!

 Peningar

 UMRÆÐAN:
Landsmenn borga reikninginn:

Ef tekið er mið af nýjustu þjóðhagsspá Seðlabankans þá verður landsframleiðsla Íslands 105 milljörðum króna lægri við árslok 2013 en hagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerði ráð fyrir í nóvember árið 2008, samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins.

„Landsmenn eru að borga reikninginn fyrir þessa ríkisstjórn, sem nýtir ekki þau tækifæri sem eru til staðar," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur bendir á að sú upphæð sem þjóðarbúið verður af, sökum minni hagvaxtar en spáð hafði verið, nemi á þriðja hundrað milljarða króna á árunum 2011- 2013.

Sjá nánar »

 KÖNNUN CAPACENT Í NÓVEMBER:

 Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna: Aðstæður slæmar og versnandi horfur

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440