Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Aðild atvinnulífsins að stjórnum lífeyrissjóða styrkir þá
Samtök atvinnulífsins telja að aðild þeirra að stjórnum lífeyrissjóða hafi verið til góðs fyrir uppbyggingu lífeyrissjóðanna og skipt sköpum við að efla þá til þess að gegna hlutverki sínu. Almennt séð er íslenska lífeyrissjóðakerfið talið eitt það besta í alþjóðlegum samanburði og eitt af því sem Ísland getur státað sig af í samfélagi þjóðanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir samtökin leggja ofurkapp á að fulltrúar þeirra í stjórnum sjóðanna gæti almennra hagsmuna sjóðanna sjálfra og vinni af fullum heilindum fyrir þá sem njóta lífeyrisréttinda og allt samfélagið.

Hann bendir á að með samstilltu átaki atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar hafi verið byggt upp öflugt kerfi á undanförnum áratugum sem byggi á samkomulagi þessara aðila í almennum kjarasamningum. Ef aðkoma SA að stjórnum lífeyrissjóða sé afþökkuð með lagasetningu eða á annan hátt hljóti hlutverki vinnumarkaðarins og kjarasamninga að vera lokið í rekstri og uppbyggingu lífeyrisjóðanna. „Þá munu íslensk fyrirtæki líta á framlög í lífeyrissjóði sem hvern annan skatt en ekki umsamdar greiðslur til mikilvægra sameiginlegra verkefna með starfsfólki sínu og samtökum þess. Þá liggur beinast við að ríkið hafi forystu um þróun lífeyrissjóðakerfisins."

Sjá nánar »

   Fréttir

Aukin þjónusta við atvinnuleitendur
Í dag verður undirritað samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands, velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, um aukna þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkur á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði. Um er að ræða viðbót við núverandi þjónustu á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar.

Sjá nánar »

Dönsk fjármálafyrirtæki gera kjarasamning til tveggja ára með 2% hækkun
Þann 8. febrúar, undirrituðu samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku og stéttarfélag starfsmanna þeirra, kjarasamning sem gildir í tvö ár frá 1. apríl 2012. Laun hækka almennt um 1% þann 1. júlí 2012 og aftur um 1% þann 1. júlí 2013. Einnig var samið um að setja á stofn nefnd aðila sem á að gera tillögu að nýju, gegnsæju launakerfi þar sem einstaklingsbundin laun endurspegli ábyrgð, hæfni og inntak starfs.

Sjá nánar »

   Samtök atvinnulífsins

Aðalfundur SA 18. apríl - taktu daginn frá
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2012 verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica en Samtök atvinnulífsins hvetja fólk úr atvinnulífinu og aðra áhugasama um uppbyggingu atvinnulífsins til að taka daginn frá og fjölmenna á Nordica.
 Frá aðalfundi SA 2011
Yfirskrift fundarins og dagskrá verður kynnt þegar nær dregur en venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 13 (í sal H). 

Opin dagskrá hefst kl. 14 (í sal A&B) og stendur til kl. 16:00 þegar atvinnulífið kveður veturinn 2011-2012 og fagnar sumri.

   Vinnumarkaðurinn

Kjarasamningar halda gildi sínu
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands ákváðu í janúar að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011. Sérstakt samkomulag milli samningsaðilanna var undirritað þann 20. janúar sem staðfesti ákvörðunina.
Samkvæmt ákvæðum kjarasamninganna frá 5. maí 2011 voru forsendur þeirra að á árinu 2011 færi kaupmáttur vaxandi, verðlag væri stöðugt, gengi krónunnar styrktist marktækt og að ríkisstjórnin efndi gefin fyrirheit. SA og ASÍ voru sammála um að ekki væri ástæða til uppsagnar kjarasamninga vegna þróunar kaupmáttar, verðlags og gengis krónunnar en að forsendan um efndir ríkisstjórnarinnar á gefnum fyrirheitum hafi ekki staðist.

Sjá nánar yfirlýsingar frá 20. janúar hér að neðan:

Yfirlýsing Samtaka atvinnulífsins vegna uppsagnarákvæðis kjarasamninga

Yfirlýsing samninganefndar aðildarsamtaka ASÍ og SA vegna opnunarákvæða kjarasamninga

Ný kaupgjaldsskrá á vef SA
Kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. febrúar 2012 er komin á vef SA. Launahækkanir 1. febrúar 2012 eru samkvæmt kjarasamningum SA og aðildarsamtaka ASÍ, dags. 5. maí 2011. Helstu launabreytingar sem koma til framkvæmda eru þær að kjarasamningsbundnir kauptaxtar hækka um 11.000 kr. á mánuði og að ráðningarsamningsbundin laun og aðrir launatengdir liðir hækka almennt um 3,5%.

Sjá nánar: Kaupgjaldsskrá nr. 15 (PDF)

Starfsfólki á vinnumarkaði fjölgaði ekki árið 2011. Full störf jafn mörg og 2009
Starfsfólk á vinnumarkaði var samtals 167.300 árið 2011 sem er sama tala og árið 2010 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Heldur fleiri voru starfandi árið 2009, eða 167.800. Flestir urðu starfsmenn á vinnumarkaðnum árið 2008, eða 178.600, en fara þarf aftur til ársins 2005 til þess að finna færri starfsmenn, en þá töldust 161.300 vera í starfi.

Sjá nánar »

   Samfélagsábyrgð fyrirtækja

Hvað er samfélagsábyrgð fyrirtækja?
Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Fjallað verður um samfélagsábyrgð fyrirtækja út frá sjónarhorni fræðimannsins, fyrirtækja og neytenda.

Róbert H. Haraldsson prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Brynhildur Pétursdóttir ritstjóri Neytendablaðsins flytja erindi. Að þeim loknum fara fram pallborðsumræður.

Sjá nánar »

   Samgöngumál

Af stað með Vaðlaheiðargöng
Samtök atvinnulífsins hvöttu nýverið til þess að framkvæmdir verði hafnar sem fyrst við Vaðlaheiðargöng. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, fjallaði um málið í pistli á vef SA þann 31. janúar þar sem hann sagði m.a. að afar lítil áhætta sé tekin fyrir fjárhag ríkissjóðs miðað við samfélagslega þýðingu Vaðlaheiðarganga.
 
„ ...  það er verkefni ríkisins að annast samgönguframkvæmdir, Vaðlaheiðargöng sem aðrar framkvæmdir. Um leið og notendurnir þurfa að greiða fyrir notkun ganganna breytast allar arðsemisforsendur ríkisins."
 

   Vefur SA

Fréttir af atvinnulífinu
Á vef SA birtist í hverjum mánuði mikill fjöldi frétta af málefnum atvinnulífsins og helstu hagsmunamálum íslenskra fyrirtækja. Á vef SA er hægt að nálgast greinargott yfirlit yfir fréttir eftir mánuðum og málaflokkum.

Smellið hér til að nálgast fréttayfirlit
Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440