
Að benda á tækifæri sem eru til staðar er líklegra til árangurs en að einblína á vandamál sem nóg er af! Hugmyndin að
www.uppfaerumisland.is er einföld. Vefurinn er vettvangur fyrir hugmyndir um hvernig hægt er að uppfæra Ísland - gera það að enn betri stað til að búa á. Tilgangurinn með honum er ekki að finna "bestu" hugmyndina, eina stóra töfralausn sem breytir öllu til hins betra á einu bretti. Markmiðið er frekar að draga fram sem flestar litlar hugmyndir sem bæði eru áþreifanlegar og framkvæmanlegar. Hugmyndir sem hægt er að tala um, meta og gera eitthvað úr.
Vertu með og taktu þátt í að uppfæra Ísland! Íslenskt samfélag er eins og Ísland sjálft - enn í mótun - og allir geta tekið þátt í að færa það til betri vegar. www.uppfaerumisland.is