Spacer
Spacer Spacer

   Leiðari

Brýnasta hagsmunamál Íslendinga
„Afnám gjaldeyrishafta er brýnasta hagsmunamál Íslendinga." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðaranum. Hann segir höftin valda atvinnulífinu og samfélaginu öllu sífellt meiri skaða og áætlun stjórnvalda um afnám haftanna sé bæði ómarkviss og ótrúverðug.

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna sem gerir ráð fyrir að þau falli niður í árslok. Vilhjálmur skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að hefjast þegar handa við afnám haftanna í stað þess að sitja með hendur í skauti og bíða eftir tillögum frá Seðlabankanum. Gjaldeyrishöftin séu fullkomlega óásættanleg fyrir atvinnulífið. „Nútíma alþjóðatengt atvinnulíf þrífst ekki á Íslandi með gjaldeyrishöftum."

Sjá nánar »

   Fréttir

Opinn fundur SA um afnám gjaldeyrishafta 16. maí á Nordica kl. 8.30-10
Fundur SA verður á Nordica 16. maíSamtök atvinnulífsins efna til opins morgunfundar um afnám gjaldeyrishafta á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 16. maí kl. 8.30-10. Á fundinum verður m.a. rætt um nýja áætlun SA um afnám gjaldeyrishaftanna.

Áætlun SA sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar.

Frummælendur á fundinum eru Árni Páll Árnason, alþingismaður, Ólöf Nordal, alþingismaður, Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Fundarstjóri er Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.

Sjá nánar »

Áformum um þreföldun sekta Seðlabankans á einstaklinga og fyrirtæki mótmælt
Í frumvarpi um gjaldeyrismál sem nú liggur fyrir á Alþingi er lögð til þreföldun á hámarki þeirra sekta sem Seðlabankanum er heimilt að leggja á aðila vegna brota á lögunum. Hámark sekta á lögaðila verði hækkað úr 75 milljónum króna í 250 milljónir og á einstaklinga úr 20 milljónum í 65 milljónir. Samtök atvinnulífsins mótmæla þessari tillögu og telja ekki efni til að hækka sektirnar, þar sem núverandi fjárhæðarmörk séu nægjanlega há til að hafa forvarnargildi.

Sjá nánar »

Orlofsuppbót 2012
Samkvæmt almennum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2012 er kr. 27.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 21.000. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til starfstíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2011 til 30. apríl 2012, og telst fullt ársstarf í þessu sambandi 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Ekki er greitt orlof af orlofsuppbót.

Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA

   Samtök atvinnulífsins

Samantekt frá aðalfundi SA 2012
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fór fram þann 18. apríl 2012 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Uppfærum Ísland. Húsfyllir var á Nordica en samantekt frá fundinum má nálgast á vef SA. Þar er m.a. að finna upplýsingar um kjör formanns, stjórnar og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins auk ársskýrslu SA 2011-2012. Á vef SA er einnig að finna umfjöllun um opna dagskrá aðalfundar SA og tillögur SA að uppfærslu Íslands.
VJ og salur á aðalfundi SA 2012

Vilmundur Jósefsson, formaður SA, flutti ávarp á fundinum ásamt Christoffer Taxell, sem er forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands. Þá fjölluðu Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar matorku, Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis, Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical og Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands um þau tækifæri sem eru til staðar til að sækja fram.

CT AV

Fundarstjóri var Ari Edwald, forstjóri 365 miðla.

Samtök atvinnulífsins þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína á aðalfund SA 2012 - sjáumst að ári.

Upplýsingar um aðalfund SA 2012 á vef SA

Stjórn Samtaka atvinnulífsins

Formaður SA 2012-2013
Á aðalfundi SA 18. apríl 2012 var Vilmundur Jósefsson endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin var rafræn og var þátttaka góð. Vilmundur var rétt kjörinn formaður starfsárið 2012-2013 með 93% greiddra atkvæða.

Ný stjórn SA 2012-2013
Ný inn í stjórnina koma Ólafur Marteinsson, Ramma hf., Gunnar Sverrisson ÍAV hf., Svana Helen Björnsdóttir, Stika ehf. og Jens Pétur Jóhannsson Rafmagnsverkstæði JRJ ehf. Úr stjórninni ganga Hermann Guðmundsson, N1 hf., Aðalheiður Héðinsdóttir, Kaffitári ehf., Loftur Árnason, Ístaki hf. og Kristín Pétursdóttir, Auði Capital hf.

Varaformaður SA 2012-2013
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SA var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf. endurkjörinn varaformaður SA, en Grímur hefur verið varaformaður SA frá árinu 2009.

Framkvæmdastjórn SA 2012-2013
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SA var framkvæmdastjórn SA endurkjörin fyrir starfsárið 202-2013. Framkvæmdastjórn stýrir starfsemi samtakanna í samræmi við stefnumörkun stjórnar og aðalfundar.

Fulltrúaráð SA hefur æðsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda.

   Aðildarfélög SA

Frá aðalfundi SFF 2012
Aðalfundur Samtaka fjármálafyrirtækja fór fram þann 27. apríl. Á fundinum var Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, kjörinn formaður stjórnar samtakanna. Höskuldur tók við af Birnu Einarsdóttir, bankastjóra Íslandsbanka, sem hefur gegnt stöðu stjórnarformanns undanfarin tvö ár. Birna situr áfram í stjórn samtakanna.

Sjá nánar »

   Uppfærum Ísland.is

Komdu með hugmynd!
sa updateÁ hugmyndavefnum www.uppfaerumisland.is má nú finna meira en 40 leiðir til að uppfæra Ísland, styrkja menntakerfið og efla atvinnulífið. Samtök atvinnulífsins opnuðu vefinn í aðdraganda aðalfundar SA og óskuðu eftir góðum hugmyndum til að gera Ísland að betri stað til að búa á. Vefurinn verður efldur á næstu vikum og mánuðum en stefnan hefur verið sett á að ná 100 hugmyndum að uppfærslu Íslands fyrir sumarið.

SA hvetja alla hugmyndaríka til að taka þátt. Tilgangurinn með leitinni er ekki að finna „bestu" hugmyndina, eina stóra töfralausn sem breytir öllu til hins betra á einu bretti. Markmiðið er frekar að draga fram sem flestar hugmyndir sem eiga það sameiginlegt að vera bæði áþreifanlegar og framkvæmanlegar. Hugmyndir sem hægt er að tala um, meta og gera eitthvað úr.

   Samfélagsábyrgð

Sjálfbærniverkefni á Austurlandi
FESTAFesta og Þekkingarnet Þingeyinga standa fyrir morgunverðarfundi um samfélagsábyrgð og sjálfbærniverkefnið á Austurlandi þriðjudaginn 15. maí næstkomandi kl. 8.30 á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsal 3.

Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaráls og Landsvirkjunar var sett á laggirnar til að fylgjast með áhrifum framkvæmda og starfsemi álvers og virkjunar á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Á fundinum verður leitast við að skýra hugtök eins og sjálfbæra þróun og samfélagsábyrgð auk þess að skoða hvernig til hefur tekist með sjálfbærniverkefnið á Austurlandi.
 

   Umsagnir til Alþingis

Samtökum atvinnulífsins berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Allar umsagnir samtakanna eru birtar á vef SA. Þar er hægt að sjá umsagnarferlið allt; hvenær mál barst samtökunum, hver er ábyrgðarmaður málsins og hvenær það er afgreitt. Mörg mikilvæg mál eru nú til umfjöllunar á Alþingi sem SA hafa skrifað umsagnir um, m.a. óráðlegar breytingar á rammaáætlun og skaðlegar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins.

Frumvörpin verði dregin til baka

Umsögn SA um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða

Umsagnir SA til Alþingis

   Erlent

Það þarf að uppfæra menntakerfið í Evrópu
Mario Montim AVForseti BUSINESSEUROPE, Jurgen Thumann, beindi þeirri ósk til José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, á ársfundi samtakanna að menntakerfið í Evrópu verði styrkt þannig að það þjóni betur þörfum atvinnulífsins. Verði það ekki gert er lítil von til þess að nýsköpun nái að blómstra í álfunni, efnahagslífið taki við sér og atvinnuleysi minnki.

Meðal ræðumanna á fundinum var Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, sem fjallaði um mikilvægi þess að koma efnahagslífinu af stað og Evrópu út úr kreppunni. 

Sjá nánar »

   Útgáfa SA

Ársskýrsla SA 2011-2012
Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2011-2012 er komin út. Þar er að finna greinagott yfirlit yfir starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Í skýrslunni er einnig ítarleg umfjöllun um þróun efnahags- og atvinnumála undanfarið ár. Rafrænt eintak skýrslunnar má nálgast á vef SA.

Sjá nánar »

Tillögur að uppfærslu Íslands
KennslaSamtök atvinnulífsins gáfu út þann 18. apríl nýtt rit þar sem er að finna tillögur samtakanna að uppfærslu Íslands. Tillögurnar miða að því að styrkja menntakerfið og efla atvinnulífið með aukinni samvinnu skóla og fyrirtækja.

Ritið byggir á umræðu um 100 stjórnenda úr íslensku atvinnulífi en fyrirtæki og samtök í atvinnulífinu kalla eftir sameiginlegri stefnumótun með stjórnvöldum um framtíð og þróun menntakerfisins. Rafrænt eintak má nálgast nú þegar á vef SA en fyrstu eintökum ritsins var dreift á aðalfundi SA 2012. 

Sjá nánar »

 

 Hús atvinnulífsins
Hús atvinnulífsins 
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík

Kjarasamningar

Vinnumarkaðsvefur

Umsagnir

Útgáfa SA

Aðalfundir SA

Fréttayfirlit

Þau eru að uppfæra Ísland
- smelltu til að horfa!

 Skema:

Skema

Marel:

Marel

Ölgerðin:

olgerdin


 

Samtök atvinnulífsins | Borgartúni 35 | IS-105 Reykjavík | Sími: 591 0000 | Netfang: sa@sa.is
Spacer

Þetta fréttabréf er sent með fréttabréfakerfi frá Outcome hugbúnaði.
Ef þú hefur áhuga á því að kynna þér Outcome fréttabréfakerfið og möguleika þess, hafðu þá samband við Outcome.
www.outcome.is / frettabref@outcome.is / 533 1440